Fréttir
Nú er kominn vika frá síðustu færslu! Reyndar var bloggerinn eitthvað bilaður í gær þegar ég ætlaði að setja inn færslu.
Það er kannski helst að frétta að ég er búinn að ráða mig þegar ég kem aftur heim til Íslands. Ég er að fara að vinna hjá Hönnun og kem til með að byrja þar í byrjun janúar á næsta ári. Þetta er búið að vera ágætt hjá Línuhönnun en mér fannst tilvalið að nota tækifærið núna og skipta um stað.
Annars var hið "annarlega" (þ.e. á hverri önn) Scanhouse party á föstudaginn, það var gríðarlegt stuð sem endaði á því að við íslendingarnir voru einir eftir klukkan hálf sex um morguninn í gríðarstuði og allt áfengið búið úr húsinu. Myndavélin var á lofti en ég hef ákveðið að setja þær ekki á netið enda er það óskrifuð regla að party myndir eiga ekki heima á veraldarvefnum.
Á laugardaginn var svo mikil tónlistarveisla, þar sem m.a. Franz Ferdinand, Violent Femmes og Muse voru að spila á svokallaðri Endfest tónlistarhátíð rétt fyrir sunnan Seattle.
Það er ennþá sama staðan í lokaverkefninu þ.e. ég er að reyna að vinna eins mikið og ég get í því. Nú eru um 10 vikur til stefnu og ég sé alveg vel fram á að geta klárað þetta á þeim tíma. Málið er bara að halda sig við efnið.
Ritað af Ingvar [17:28]
<< Home