Ingvar

[ miðvikudagur, október 27, 2004 ]

Helgin
Helgin var ansi skemmtileg og ekkert voðalega mikið lært. Á föstudaginn fór ég á tónleika með Interpol og síðan var haldið áfram að drekka fram undir morgun.

Orri Gunnarsson var í heimsókn hérna í Seattle frá laugardegi til þriðjudags. Á laugardagskvöldið fórum ég, Steini og Gunnhildur með hann í smá skoðunarferð um Seattle. Svo um kvöldið fórum við út að borða og á nokkra bari á Capitol hill. Á sunnudagskvöldið fór ég síðan í mat til Steina og Gunnhildar en Orri gisti hjá þeim meðan hann var hérna. Á mánudagskvöldið kíktum við Steini með Orra á nokkra bari hérna rétt við skólann.

Í gær þriðjudag var svo hið árlega Valle boð þar sem allir Valle nemarnir hittast ásamt ýmsum fyrirmönnum eins og íslenska konsúlnum og prófessorum og þeim sem sjá um Valle. Það var boðið upp á fínan mat og vín, og eins og alltaf voru íslendingarnir einir eftir þegar party-ið var búið.

Annars er það að frétta að það er komið á hreint að ég flýg til Íslands 21. desember og verð kominn til Íslands að morgni 22. desember. Þannig að núna þarf ég bara að spýta í lófana og klára verkefnið, en ég er kominn langleiðina með að skrifa uppkast af ritgerðinni sem ég klára vonandi í byrjun næstu viku. Svo hef ég mánuð til að laga uppkastið til og bæta við einhverju smávegis sem mér og prófessorunum á eftir að detta í hug þegar við lesum uppkastið.
Ritað af Ingvar [18:10]

[ miðvikudagur, október 20, 2004 ]

Michael Moore
Í gærkvöldi fór ég á ansi skemmtilegan fyrirlestur með Michael Moore, þar sem hann hélt áfram að segja frá vitleysunni í George W. Bush. Það var ansi magnað að upplifa það að sjá 10þús manns sem eru svo innilega á móti Georgi Runna. Eddie Wedder og Mike McCready úr Pearl Jam hituðu upp fyrir hann með því að spila nokkur lög.

Ég setti nokkrar myndir á netið.
Nú eru einungis 13 dagar í kosningar og spennan hérna er gríðarleg.
Ritað af Ingvar [13:08]

[ fimmtudagur, október 14, 2004 ]

Dell ferðavélar
Kannski skýrir þetta að einhverju leiti afhverju það eyðilögust tvö batterí, tveir harðir diskar og móðurborð í gömlu Dell Inspiron 7500 ferðavélinni minni!!
Ritað af Ingvar [17:38]

[ þriðjudagur, október 12, 2004 ]

Update
Ég fór á laugardaginn í fyrsta skipti á leik í Ameríska "fótboltanum", ég verð að segja að það var ansi mögnuð lífsreynsla. Fyrir leik var þjóðsöngurinn að sjálfsögðu spilaður og í þetta sinn af af rúmlega 3000 skólahljómsveitum sem áttu reyndar erfitt með að halda takti. Síðan hófst leikurinn, eftir nokkrar mínútur var Husky (University of Washington liðið) búið að skora snertimark, þannig að maður bjóst við miklum markaleik. En næsta snertimark kom ekki fyrr en í þriðja fjórðungi þegar Husky skoraði aftur, reyndar skoruðu San Jose vallarmark (fieldgoal) í öðrum fjórðungi. Svo náði Husky að bæta við einu snertimarki í viðbót í loka fjórðungnum ásamt því sem San Jose skoraði annað vallarmark. Og leikurinn endaði með sigri Husky 21 - 6, fyrsti sigurleikur þeirra á þessari leiktíð.
Svo er annað sem vakti athygli, en það er að þetta er nákvæmlega eins og í bíómyndunum, þ.e. klappstýrur útum allt og fólk að éta popp, hnetur og annan mat á meðan á leik stendur. Hér má sjá myndir frá leiknum!

Svo um kvöldið var mér svo boðið í mat til Helgu og Líneyar, ásamt Steina og Gunnhildi og Armin. Þetta var ansi magnað kvöld og góður matur.

Annars er það að frétta að ég fór í gær og skoðaði lokaverkefni sem gerð hafa verið í byggingarverkfræðideildinni, alls eru til rúmlega 2500 ritgerðir á bókasafninu. Mér fannst magnað að sjá að sumir hafa skilað 500bls ritgerðum á meðan aðrir hafa skilað 30bls ritgerðum.

Ég er núna á fullu að skrifa lokaritgerðina en stefnan er að vera kominn með uppkast af ritgerðinni núna í lok mánaðarins. Og svo kem ég til með að hafa bróðurpartinn af nóvember til að ljúka við hana og klára það sem eftir er af rannsókninni minni. Eftir það fer ég að undirbúa vörnina sem verður væntanlega í kringum 10. desember.
Ritað af Ingvar [12:30]