Ingvar

[ fimmtudagur, apríl 29, 2004 ]

Coachella
Þá er loksins komið að því, ég flýg til LA klukkan 7:15 í fyrramálið (14:15 að íslenskum tíma) með United Airlines og þá er planið að taka smá túristapakka. Svo er planið að mæta til Coachella einhver tíman um kvöldmatarleitið og slá upp tjaldbúðum með nokkrum öðrum íslendingum. Síðan á laugardaginn byrjar aðalatriðið þ.e. tónleikarnir sjálfir en hér má sjá dagskránna. Ég ætla svo að reyna að setja inn myndir í næstu viku.
Ritað af Ingvar [23:03]

[ mánudagur, apríl 26, 2004 ]

Coachella
Það er komin veðurspá fyrir Coachella og það lítur út fyrir að það verði við líkamshita á daginn og við stofuhita á nóttinni meðan kaldast er. Þannig að maður verður að vera duglegur að drekka og bera á sig sólarvörn.

Að sjálfsögðu vann M. Schumacher formúluna um helgina og með yfirburðum. Einungis spurning hvort að hann nái að vinna allar keppnirnar í ár sem væri einstætt. Það er greinilegt að enginn á séns í hann, ekki einu sinni Barrichello sem keyrir eins bíl. Það var samt gaman að sjá hvað Button var að gera góða hluti.
Ritað af Ingvar [13:37]

[ föstudagur, apríl 23, 2004 ]

Gleðilegt sumar
Sumardagurinn fyrsti var víst á Íslandi í gær, og því vil ég óska öllum gleðilegs sumars. Annars er það helst að frétta að ég er að reyna að gera eins mikið af verkefnum fyrir skólann núna eins og hægt er áður en ég flýg til LA. En í dag er ekki nema vika þar til ég fer á Coachella. Annars er orðið uppselt á hátíðina á laugardeginum og tjaldstæðið er orðið fullt alla helgina og fólk er að kaupa miða á Ebay á uppsprendu verði.

Svo er loksins komið að næstu formúlu eftir þriggja vikna hlé, en ég er samt hræddur um að Ferrari eigi eftir að vinna þessa keppni tvöfalt.
Ritað af Ingvar [13:36]

[ laugardagur, apríl 17, 2004 ]

KILL BILL
Í gærkvöldi var Kill Bill maraþon hjá mér og Armin en við byrjuðum á að horfa á fyrri myndina á DVD og svo skelltum við okkur í bíó á seinni myndina.
En í dag er komið að lærdómsdegi og ég ætla að reyna að gera eitthvað í lokaverkefninu.
Ritað af Ingvar [14:40]

[ föstudagur, apríl 16, 2004 ]

David Bowie var snilld
Tónleikarnir með Bowie voru algjör snilld og spilaði David Bowie í rúmlega tvo og hálfan tíma. Hér má sjá lagalistann og stutta umfjöllun um tónleikana.
Svo eftir tvær vikur verð ég í LA á leið á Coachella.
Ritað af Ingvar [12:49]

[ miðvikudagur, apríl 14, 2004 ]

David Bowie
Nú er loksins komið að David Bowie tónleikunum. En þeir eru í kvöld efir rúma fjóra tíma.
Ritað af Ingvar [16:11]

[ laugardagur, apríl 10, 2004 ]

Skóli og sumarveður
Það er búin að vera þvílík blíða hérna í Seattle, 20 gráður dag eftir dag og þar af leiðandi er erfitt að halda sig inni til að reyna að læra eitthvað. Sem betur fer er ekkert brjálæðislega mikið að gera í skólanum en ég er reyndar að reyna að byrja á lokaverkefninu eins og tími gefst til með kúrsunum. Svo verð ég líka að vera duglegur að læra núna þar sem það eru ekki nema tæpar þrjár vikur í að ég fljúgi niður til Californíu á Coachella.

Annars var ég að kaupa mér Video áðan þar sem ég er búinn að komast að því að það er ómögulegt að ætla að vakna aðra hverja helgi klukkan 3 um nótt til að horfa á formúluna auk þess sem endursýningin er ekki fyrr en klukkan 7 á sunnudagskvöldum. En ég fékk fínt Panasonic video fyrir $60.

Annað kvöld er svo búið að bjóða mér í ÍSLENSKT lambalæri og annað góðgæti í Sesamestreat. Auk þess sem ég get loksins byrjað á páskaegginu í fyrramálið.

Svo langar mig að lokum að vekja athygli á auglýsingaherferð sem er í gangi í sjónvarpinu hérna. En þar er verið að kynna einhverja keppni þar sem aðalvinningurinn er að fara til Íslands að spila miðnæturgolf.
Ritað af Ingvar [19:55]