Ingvar

[ föstudagur, janúar 30, 2004 ]

Nóg framundan
Ég á eftir að hafa nóg að gera núna næstu daga. Í fyrramálið er áætlað að fara á snjóbretti hingað. Á sunnudaginn er svo komið að Superbowl og það hefur í för með sér gríðarleg party og stemmingu. Svo á miðvikudagskvöldið eru tónleikar með Starsailor og á fimmtudagskvöldið eru tónleikar með Gomez.

Einhver staðar þarna á milli verð ég svo að koma skólanum og lærdóminum fyrir.
Ritað af Ingvar [18:50]

[ sunnudagur, janúar 25, 2004 ]

Vonbrigði
Eftir mikla tilhlökkun að komast á snjóbretti í dag varð ekkert úr því. Þegar við vöknuðum í morgun klukkan 7 var byrjað á því að tékka hvernig færðin væri og hvernig veðrið væri í fjallinu. Og þá kom í ljós að færðin var mjög þung og einnig var ástandið ekki mjög gott í fjallinu því að það hafði snjóað mjög mikið í nótt. Við verðum bara að gera aðra tilraun um næstu helgi.
Ritað af Ingvar [14:15]

[ föstudagur, janúar 23, 2004 ]

Doktorsvörn
Núna rétt áðan var ég á doktorsvörn hjá Haldóri Árnasyni hérna í UW en hann útskrifaðist úr HÍ með Kára (sem er lengst til vinstri á myndinni). Ég reikna með að vörnin hafi verið samþykkt en ég hafði reyndar ekki tíma til að bíða eftir því að sjá það. Annars var ansi fyndið að fyrir utan nefndina voru aðeins íslendingar í salnum. Og það var boðið upp á íslenskar pönnukökur.

Á sunnudaginn er svo komið að því að fara aftur á snjóbretti og ég verð að segja að ég sé orðinn ansi spenntur að komast aftur í fjallið. Og vonandi verður maður orðinn betri á brettinu eftir þennan dag.
Ritað af Ingvar [17:19]

[ fimmtudagur, janúar 22, 2004 ]

EM í handbolta
Í dag spilaði Ísland víst sinn fyrsta leik á EM í handbolta við einhverja aðra Evrópuþjóð í einhverju Evrópulandi. Ég verð nú að segja að ég sé ansi fegin að vera hérna í USA þar sem hérna er enginn möguleiki að sjá leikina, en mér hefur alltaf fundist handbolti frekar leiðinlegur áhorfs. Hér er bara farið að telja niður í superbowl leikinn sem fer víst fram 1. febrúar.
Ritað af Ingvar [20:55]

[ miðvikudagur, janúar 21, 2004 ]

Nýtt athugasemdakerfi
Nú er ég endanlega búinn að gefast upp á athugasemdakerfinu sem ég var með þannig að ég skipti yfir í HaloScan.
Ritað af Ingvar [19:48]

[ sunnudagur, janúar 18, 2004 ]

Helgin
Það er búið að vera nóg að gera þessa helgi. Á föstudaginn var hið svokallaða Skanhouseparty en við byrjuðum í party heima hjá Þresti þar sem var grillað og drukkið áður en farið var í Skanhouse. Það var gríðarlegt fjör í báðum partyunum og mikið drukkið.

Á laugardagsmorgunin fór ég svo á snjóbretti ásamt 7 öðrum en við vorum nánast öll að fara í fyrsta skipti á snjóbretti hingað. Þar sem flestir voru að fara í fyrsta skipti gekk þetta misvel hjá fólki en allir voru búnir að ná smátökum á brettinu áður en dagurinn var yfirstaðinn. Þetta var gríðarlegt stuð og núna stefnum við á að fara aftur á næsta laugardag. Fyrst vorum við reyndar að pæla í að fara aftur í dag en í gærkvöldi var ákveðið að gera það ekki, og ég held að það hafi verið sniðug ákvörðun því ég verð að viðurkenna að maður er svolítið þreyttur líkamlega núna.

Ég ætla bara að taka það rólega í dag nema eitthvað annað komi uppá. Svo á morgun er frí í skólanum og þann dag ætla ég að nota til að klára heimadæmin sem ég á að skila á þriðjudaginn. En þessi frídagur er kallaður Martin Luther King dagur en samt var fæðingardagur hans síðasta fimmtudag.
Ritað af Ingvar [13:01]

[ miðvikudagur, janúar 14, 2004 ]

Undanfarin vika
Síðasta miðvikudag bauð Armin mér og Steina og Gunnhildi í heimsókn til sín en ekki vildi betur til en að hann skar sig þegar hann var að þrífa þannig að við þurfum að fara með hann á bráðavaktina. Maður hefur oft séð fólk í bíómyndum bíða í andyrinu á bráðavaktinni, og þá oftar en ekki verður fólk mjög óþolinmótt og skil ég það vel eftir þessa heimsókn. Því það tók um tvo og hálfan tíma fyrir læknana að skoða sárið og sauma fjögur spor. Við styttum okkur meðal annars stundir með því að horfa á eldgamla X-files þætti og að skoða fiskabúr sem var í andyrinu. Síðan allt í einu sáum við eitthvað lítið þjóta eftir gólfinu en þá var það mús sem var búin að vera á spítalanum í einhvern tíma til að gera grikk í fólki.

Á föstudaginn var íslendinga hittingur auk þess sem nokkrum útlendingum var boðið líka. Það var byrjað í mat heima hjá Steina og Gunnhildi þar sem meðal annars var hangikjöt og harðfiskur á boðstólum. Seinna um kvöldið var farið niður í bæ á klúbb þar sem spiluð var diskótónlist sem vakti mismikla lukku.

Ég er að vinna í að koma mér í lærdómsgírinn aftur eftir jólafrí. En fyrsta heimaverkefni vetrarins liggur í valnum og á ég að skila því á morgun. Auk þess hef ég verið mjög duglegur að fara í ræktina en stefnan er að fara allavega þrisvar í viku.
Ritað af Ingvar [01:03]

[ þriðjudagur, janúar 06, 2004 ]

Myndir af snjóstorminum
Ég fór út í göngutúr með myndavélina og tók nokkrar myndir af snjóstorminum svo að þið getið séð hvað það þarf lítið til að stöðva allt hér í Seattle.
Sjá myndir
Ritað af Ingvar [15:31]

Snjóstormur
Í dag er "snjóstormur" hér í Seattle og allstaðar í kring. Reyndar er ekki nema í mesta lagi eitt fet af jafnföllnum snjó í fylkinu. Á Íslandi myndi fólk ekki kippa sér mikið upp við þetta, en hér er þetta öllu alvarlegra t.d. er búið að loka flestum skólum meðal annars University of Washington frá og með hádegi. Það á reyndar að fara að rigna í kvöld þannig að allur snjórinn ætti að fara.
Ritað af Ingvar [12:45]

[ sunnudagur, janúar 04, 2004 ]

Kominn til Seattle
Nú er ég mættur aftur til Seattle. Fríið heima á Íslandi var mjög fínt en samt gerði ég nú lítið af viti enda var þetta jólafrí.

En um jólin var mikið borðað og mikið sofið. Þess á milli voru pakkarnir opnaðir og farið í jólaboð. Auk þess afrekaði ég meðal annars að fara bæði á árshátið Hamarsins í Perluna og út að borða með familiunni á Grillið á Hótel Sögu.

Ferðalagið gekk mjög vel í gær og ekki var hægt að sjá að það væri búið að hækka öryggisstigið hérna, allavega var ég alltaf mjög fljótur í gegnum öll tékk. Svo var líka fínt að Líney var með sömu flugvélum þannig að tíminn leið aðeins hraðar sem er mjög gott á 16 tíma ferðalagi.

Á morgun byrjar svo skólinn.

Já og meðan ég man, Gleðilegt nýtt ár.
Ritað af Ingvar [13:33]