Skólinn er byrjaður
Í gær fór ég í fyrstu tímana mína hérna í University of Washington og varð ekki fyrir vonbrigðum. Þetta lýtur að allt mjög vel út. Svo er ég kominn með fína aðstöðu til að læra í skólanum, er þar með skrifborð með læsanlegum skápum og einnig er ég með nettengingu þar. Það er einnig skipt niður í herbergi eftir því hvaða verkfræði maður er að læra, t.d. er Burðarþolið sér, Straumfræðin sér, Umferðarverkfræði sér o.s.frv.
Svo er ég búinn að fá Debetkort frá Bank of America þannig að nú getur maður hætt að þvælast alltaf með pening á sér.
Ritað af Ingvar [14:44]
Komnar myndir
Nú er ég loksins búinn að koma myndum á netið. Þar má sjá myndir af íbúðinni, Campusnum, úr bátsferðinni sem ég fór í á sunnudaginn með FIUTS og loks má sjá myndir úr verslunarferðinni okkar í Costco.
Bátsferðin var algjör snilld það var siglt frá landi klukkan fimm og komið aftur að landi um klukkan hálf átta. Það var siglt meðfram strönd Seattle og þar gafst manni tækifæri á að taka fullt af myndum af borginni. Við komum að landi í ljósaskiptunum og það var ótrúlega flott en því miður náði ég ekki nógu góðum myndum af því enda erfið birtuskilyrði.
Ritað af Ingvar [14:39]
Update
Núna er ég fluttur inn í íbúðina og er að vinna í að koma mér fyrir. Ég er meðal annars búinn að kaupa rúm og sjónvarp. Svo er eitthvað komið í ískápinn og frystinn. Það er alveg magnað að það sé hægt að fá 20" Philips sjónvarp fyrir 160$ hérna en við fórum í Costgo í gær. Ég var næstum því búinn að kaupa DVD spilara líka á 60$ en ég lét það bíða aðeins. Í staðinn er ég búinn að panta digital Cable og nettengingu frá Comcast og vonandi koma þeir á fimmtudaginn í næstu viku og tengja mig.
Annars er ég kominn með Washington State ID þannig að ég þarf ekki lengur að þvælast með vegabréfið á mér til að geta keypt áfengi eða farið á pöbbinn en það er alveg merkilegt hvað allir eru alltaf spurðir um skilríki hérna þó að það sé augljóst að einstaklingurinn sé orðinn 21 árs.
Núna er ég aðeins að vona að ég fari að fá Social Security Number svo að ég geti farið að fá mér síma, en það er hrikalegt að hafa ekki GSM þegar maður er vanur því. En það virðist vera einna erfiðast hér að fá sér GSM og þeir virðast ekki þekkja prepaid símakort eða Frelsi eins og við erum vön heima á Íslandi.
Svo byrjar skólinn á mánudaginn og er mig eiginlega bara farið að hlakka til að byrja í skólanum. En það var kynning í dag á skólanum og þetta lýtur allt mjög vel út.
Ritað af Ingvar [16:04]
Kominn með íbúð
Ég er kominn með íbúð og flyt inn á morgun. Ég set einhverjar myndir af íbúðinni á netið þegar ég er búinn að koma mér fyrir. Þetta eru fínar studio íbúðir með sér baðherbergi, en eldhúsið er sameiginlegt með hæðinni og einnig eru þvottavél og þurkari þar inni. Svo er maður ekki nema 10 mín að labba í skólann og ennþá fljótari ef maður hjólar, en ég á reyndar ennþá eftir að kaupa mér hjól.
Ef þið viljið senda mér póst þá er heimilisfangið:
Ingvar Rafn Gunnarsson
4629 21st Ave NE #A301
Seattle, WA 98105
USA
Ritað af Ingvar [20:18]
Kominn með gestabók! Þannig að endilega lítið þar inn og skráið komu ykkar.
Ritað af Ingvar [18:20]
Húsnæði
Er sennilega búinn að finna mér húsnæði rétt við skólann. Það leit ágætlega út og var ekkert alltof dýrt, eini gallinn er að aðal managerinn var ekki við í dag en átti að vera við á morgun þannig að ég ætla að kíkja aftur á morgun og vonandi get ég þá bara gengið frá því og farið að koma mér almennilega fyrir.
Ritað af Ingvar [18:55]
Seattle
Hingað til er ég búinn að vera að koma mér inn í kerfið þ.e. skrá mig í kúrsa, sækja um Social Security Number, opna bankareikning. Þarf reyndar að bíða eitthvað eftir SSN því að innflytjendaeftirlitið var ekki búið að skrá komu mína inn í tölvukerfið hjá sér en það reddast vonandi fljótlega. En annars hefur þetta allt gengið skv. björtustu vonum.
Á morgun er stefnan að byrja að skoða húsnæði og vonandi verður það komið í gegn fyrir helgi en ég er reyndar ennþá í mjög góðu yfirlæti hjá Steina og Gunnhildi.
Við erum meðal annars búinn að fara einu sinni út að borða á alvöru Amerískan matsölustað þar sem skammtarnir eru Huge. Svo á laugardaginn var fyrsta íslendinga partyið. Svo erum við búinn að skoða Lake Washington og Miðbæinn í Seattle og allt lítur þetta vel út.
Ritað af Ingvar [18:42]
Kominn til Seattle
Nú er ég kominn til Seattle og ferðin gekk að óskum og ég lennti í Seattle rétt fyrir miðnætti þann 10. sept. Síðan tók við eins og hálfs klukkutíma leigubílaferð því að leigubílstjórinn viltist, hann reyndar stoppaði mælinn þannig að ég borgaði "bara" 50$. Ég gisti hjá Steina meðan ég er að koma mér fyrir og leita mér af íbúð o.s.frv. Þetta er alveg brilliant borg eða allavega það sem ég hef séð af henni. Fleiri fréttir koma vonandi fljótlega.
Ritað af Ingvar [21:00]
Nú er komið að því
Ég legg af stað til Seattle núna eftir 4 tíma. Ég millilendi á leiðinni í Minneapolis og bíð þar í þrjá og hálfan tíma og svo held ég áfram til Seattle. Vonandi kemst ég fljótlega á netið aftur til að láta vita af mér þegar ég verð kominn út.
Ritað af Ingvar [06:35]
Eyjar
Eyjar voru algjör snilld, fyrir utan Herjólf. Það var hrikalegt í sjóinn á föstudaginn en mun skárra í gær. Við náðum að skoða margt í eyjum og slotrið hans Árna var algjör snilld. Vegna fjölda áskoranna læt ég hér fylgja með myndir af slotrinu og Árna. Við vorum reyndar ekki í íbúðinni hans heldur vorum við í íbúðinni fyrir neðan, en pabbi þekkir fólkið sem á þá íbúð en við þekkjum Árna ekki neitt. Reyndar þekktum við fólkið sem var með íbúðina hans Árna á leigu þannig að við kíktum á hana og tókum myndir.
Ritað af Ingvar [06:19]
Síðasti vinnudagurinn
Í dag er síðasti vinnudagurinn minn í sumar. Þetta er búið að vera mjög fínt í sumar en ég hef verið að hanna háspennulínu í Póllandi ásamt fleirum hérna á Línuhönnun.
Ég er að fara til Eyja um helgina á hálfgert fjölskyldumót, og erum við að fara að gista í Höfðabóli. Fyrir þá sem ekki vita þá er þetta bjálkahúsið hans Árna Johnsen. Ég er bara að vona að það verði ekki mjög vont í sjóinn á eftir þegar við förum í Herjólf.
Ritað af Ingvar [08:10]
Jón Snæ er kominn með bloggsíðu
Bloggsíðum fjölgar óðum og nú er Jón kominn í hóp bloggara. Vonandi á hann eftir að verða öflugur í að skrifa inn á bloggið þannig að við getum fylgst með honum. Hann fær líkt og aðrir link hérna á síðuna hjá mér.
Ritað af Ingvar [10:17]
Vika í brottför
Nú er aðeins vika í brottför til USA. Ég held að allt sé að verða tilbúið, það eina sem ég á eftir að gera er að kaupa $ áður en ég fer út. Og að sjálfsögðu pakka niður í töskurnar, sem verða eflaust vel troðnar.
Ritað af Ingvar [15:52]
Siggi og Sara eru komin með bloggsíðu
Þau eru á leiðinni til Indlands og á síðunni verða vonandi örar fréttir af þeim.
Ritað af Ingvar [17:31]
KR-ingar eru íslandsmeistarar
Kvennalið KR varð íslandsmeistari á laugardaginn og svo í kvöld fylgdi karlaliðið því eftir og vann íslandsmeistaratitill karla með því að leggja Grindavík af velli 3-1 á sama tíma og Skagamenn lögðu liðið úr Árbænum.
Ritað af Ingvar [15:19]