Ingvar

[ þriðjudagur, september 28, 2004 ]

Fréttir
Nú er kominn vika frá síðustu færslu! Reyndar var bloggerinn eitthvað bilaður í gær þegar ég ætlaði að setja inn færslu.

Það er kannski helst að frétta að ég er búinn að ráða mig þegar ég kem aftur heim til Íslands. Ég er að fara að vinna hjá Hönnun og kem til með að byrja þar í byrjun janúar á næsta ári. Þetta er búið að vera ágætt hjá Línuhönnun en mér fannst tilvalið að nota tækifærið núna og skipta um stað.

Annars var hið "annarlega" (þ.e. á hverri önn) Scanhouse party á föstudaginn, það var gríðarlegt stuð sem endaði á því að við íslendingarnir voru einir eftir klukkan hálf sex um morguninn í gríðarstuði og allt áfengið búið úr húsinu. Myndavélin var á lofti en ég hef ákveðið að setja þær ekki á netið enda er það óskrifuð regla að party myndir eiga ekki heima á veraldarvefnum.

Á laugardaginn var svo mikil tónlistarveisla, þar sem m.a. Franz Ferdinand, Violent Femmes og Muse voru að spila á svokallaðri Endfest tónlistarhátíð rétt fyrir sunnan Seattle.

Það er ennþá sama staðan í lokaverkefninu þ.e. ég er að reyna að vinna eins mikið og ég get í því. Nú eru um 10 vikur til stefnu og ég sé alveg vel fram á að geta klárað þetta á þeim tíma. Málið er bara að halda sig við efnið.
Ritað af Ingvar [17:28]

[ þriðjudagur, september 21, 2004 ]

Íslandsmótið í knattspyrnu
Nú er Landsbankadeildinni búinn og það með sigri Fimleikafélags Hafnarfjarðar. Reyndar er þeir víst búnir að spila langbest í sumar.

KR náði að halda sæti sínu í deildinni eftir smá strögl, þeir eiga eftir að koma sterkir til leiks næsta sumar þegar ég fer að mæta á völlinn. En niðurleið þeirra hófst í fyrra haust eftir að ég flutti út.

Ég var samt ekki nógu ánægður með að Fram skyldi halda sæti sínu í deildinni en eitt árið með heppni. Víkingur átti miklu betur skilið að halda sætinu.

Annars er það að frétta að ég er að vinna í lokaverkefninu á fullu og er farinn að sjá fyrir endann á því. Þannig að þetta hlýtur að hafast fyrir jól.
Ritað af Ingvar [16:15]

[ þriðjudagur, september 07, 2004 ]

Myndir
Ég setti loksins inn nokkrar myndir frá því í sumar. En þar sem ég kláraði plássið þá get ég ekki sett inn meira í bili. Hér má sjá myndir frá Grand Canyon og Hoover Dam í boði www.flickr.com.
Ritað af Ingvar [15:45]

Labour day
Um helgina var svokölluð labour day helgi hérna í BNA. Sem er einhvers konar verslunarmannahelgi þar sem það er frí á mánudeginum. Eini munurinn er að þetta er fyrsta helgin í september ekki ágúst. Af því tilefni var efnt til mikillar tónlistarhátíðar hérna í Seattle sem kölluð er Bumbershoot. Ég lét mér nægja að fara þangað í gær mánudag, en þá var meðal annars Pixies að spila. Þeir stóðu vel undir væntingum og tóku alla slagarana og náðu gríðarlegri stemmingu í mannskapinn.
Fyrir neðan má sjá bestu myndina sem ég náði af þeim.
Ritað af Ingvar [14:35]

[ fimmtudagur, september 02, 2004 ]

Uppfærsla
Það er ekki mikið að frétta héðan eins og sést hefur á blogginu undanfarið. Máltakið segir jú "Engar fréttir eru góðar fréttir!". En ég er að reyna að vinna eins mikið í verkefninu og hægt er og gengur það ágætlega þessa dagana.

Annars var nú alvöru fylleri á föstudaginn síðasta þar sem við vorum að til að verða fjögur um nóttina, enda eingöngu íslendingar samankomnir!

Ég horfði á ansi magnaðan þátt um Kárahnjúka í sjónvarpinu hérna í gærkvöldi, greinilegt að það var mjög tæpt að verkið hefði stöðvast síðast liðið vor þegar leysingarnar voru sem mestar.

Það er líka helvíti magnað að sjá hvað Björk er stórt nafn hérna í USA, en þegar nýji diskurinn hennar kom út núna á þriðjudaginn voru miðnætur opnanir í mörgum búðum til að fólk gæti fengið diskinn sem fyrst. Auk þess eru heilu rekkarnir bara með disknum hennar í sumum hljómplötubúðunum hérna.
Ritað af Ingvar [13:40]