KR 1:ía 0
Nú trónir KR á toppi Landsbankadeildarinnar eftir frækinn sigur á skagamönnum í gærkvöldi!!
Ritað af Ingvar [02:24]
Vonbrigði
Það voru vonbrigði að Birgitta skyldi ekki vinna Evrósýn (Eurovision) á laugardaginn en samt er nú 9 sætið ekki svo slæmur árangur.
Ritað af Ingvar [06:41]
Vika síðan ég bloggaði síðast
Núna þegar ég er byrjaður að vinna og nettengingin heima er ekki til að hrópa "húrra" yfir á eftir að líða lengri tími milli blogga en þó lofa ég eins tíðum uppfærslum og tími og nenna leyfa.
Ritað af Ingvar [14:04]
Próflokahátíðin
Próflokahátíðin var frábær og ekki skemmdi veðrið fyrir og svo endaði hún nánast á fullkominn hátt með sigri Ferrari (Hefði viljað sjá Rubens taka Kimi!).
Ég vil benda á myndir á heimasíðu Jóns, ég set kannski einhverjar myndir á netið við tækifæri.
Ritað af Ingvar [14:04]
Próflokahátíð
Þó að það sé komin vika síðan prófin kláruðu eru ennþá 4 dagar í próflokahátíðina og spennan magnast. Mig hlakkar til að hitta ykkur hress og kát á laugardaginn! Minni fólk á að sækja söngbókina hans Óla og prenta hana út svo að allir geti tekið þátt í söngnum.
Ritað af Ingvar [13:58]
Kosningar
Mig langaði til að heyra hvað fólki finnst um úrslit kosninganna, sjálfur er ég þokkalega sáttur þó að flokkurinn sem ég kaus hafi ekki komist eins og best verður kosið frá kosningunum.
Ritað af Ingvar [17:20]
Vinna
Ég er mættur til vinnu og hið eiginlega "sumarfrí" er byrjað!
Ritað af Ingvar [03:23]
University of Washington
Þá er það komið á hreint ég verð í University of Washington næsta vetur! Bréfið kom loksins áðan sem sagði að ég hefði verið tekin inn í skólann, þó að ég hafi nú verið nokkuð vissum að það myndi verða jákvætt enda var ég búinn að fá bréf þar sem sagt var að byggingarverkfræðideildin hafi mælt með því að yrði tekinn inn.
Ritað af Ingvar [07:49]
Þá er maður búinn í prófum og aðeins eftir að klára eitt verkefni og þá er mitt nám í Háskóla Íslands búið.
Svo byrja ég að vinna á fimmtudaginn!
Ritað af Ingvar [11:07]
Ég vil óska stuðningsmönnun Manshester United til hamingju með titilinn í gær.
Ritað af Ingvar [03:24]
Góður dagur hjá Ferrari
Báðir bílarnir í þremur efstu sætunum og Schumacher skildi hina eftir í reyk.
Ekki gekk jafn vel hjá Mclaren

Ritað af Ingvar [09:59]
Eitt próf eftir
Nú er steypuprófið búið og það gekk bara ágætlega.
Nú er aðeins síðasta prófið mitt eftir í Háskóla Íslands ef allt gengur upp!!
Ritað af Ingvar [08:12]
Nýi fákurinn stendur fyrir sínu
Báðir Ferrari bílarnir á ráspól og Raikonen nær ekki einu sinni tíma!!
Ritað af Ingvar [08:07]
Pulsur
Ég mæli með að allir kíki á kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins hjá 10-11 og fái sér pulsu og drykk.
Ekki er verra að láta stærðfræðing setja á hana fyrir sig, á verkalýðsdaginn sjálfan!!
Ritað af Ingvar [09:56]