Páskaegg
Ég var að fá skemmtilegan pakka frá Íslandi sem innheldur meðal annars Nóa páskaegg og lakkrís frá fjölskyldunni minni sem fær bestu þakkir fyrir. Þannig að núna mega páskarnir alveg fara að koma þannig að ég geti borðað páskaeggið auk þess sem David Bowie tónleikarnir eru í vikunni eftir páska.
Þar sem enginn hefur gefið sig fram að hafa verið 10 þúsundasti gesturinn verð ég að drekka bjórinn sjálfur á Coachella.
Ritað af Ingvar [12:25]
Sumar
Nú held ég að vorið sé komið hérna í Seattle allavega er sól og 25°c hérna í augnablikinu.
Annars er það helst að frétta að ég fór á snjóbretti í gær í glampandi sólskini og er núna aðeins að líða fyrir það enda með smá roða í andlitinu og harðsperrur.
Spring Breakið er búið og ég byrjaður á síðustu önninni í kúrsum hérna.
Svo er farið að styttast í Coachella hátíðina.
Ritað af Ingvar [13:26]
SPRING BREAK
Síðan ég komst loksins í spring break er búið að vera brjálað mikið að gera. En samt hef ég ekki verið að læra heldur að ferðast um næsta nágrenni Seattle.
Vancouver
Á föstudagskvöldið fór ég með Þresti (Polly) til Vancouver og vorum við þar í tæpan sólarhring. En við lögðum af stað útúr Seattle uppúr klukkan 8 eftir að hafa náð í bílaleigubíl niður í miðbæ og finna til það sem þurfti að taka með. Ferðin gekk áfallalaust að mestu nema einu sinni þegar Hraðbrautin var með exit á akreininni lengst til vinstri en þá fór ég útaf þar en það tók samt ekki nema um smá stund að komast aftur upp á hraðbrautina. Síðan þegar við komum að landamærunum tók við klukkutíma biðröð að komast yfir. Og það kom okkur gríðarlega á óvart að við þurftum að fara útúr bílnum og tala við Kanadísku landamæraverðina og sýna þeim öll eyðublöð sem við vorum með og segja hvað við ætluðum að gera og eitthvað meira. Eftir smá stund hleyptu þeir okkur í gegn.
Við vorum komnir til Vancouver um miðnætti og fengum okkur bjór og fórum svo að sofa enda var stefnan að nýta laugardaginn vel og vakna snemma. Við rifum okkur upp klukkan átta á laugardagsmorgninum og vorum komnir niður í bæ um níu leitið og tókum þá smá túrista hring og skoðuðum það helsta. Síðan eftir hádegi tókum við bílinn og keyrðum um miðbæinn og helsta nágrenni. Það er alltof langt mál að telja upp allt sem er merkilegt í Vancouver enda frábær og falleg borg sem ég á eflaust eftir að skoða aftur. Samt er vert að nefna BC Place Stadium sem er með "uppblásnu" þaki. Síðan var komið að heimleiðinni en þá þurftum við að bíða í um hálftíma á landamærunum og svo rétt kíkti landamæravörðurinn á vegabréfin okkur og bauð okkur svo velkomna "heim".
Á laugardagskvöldið var svo kíkt á barinn þar sem báðir Þrestirnir voru kvaddir en þeir flugu báðir "heim" á sunnudaginn. Annar byrjar á því að fara til New York og svo til Íslands en hinn ætlar að fara hinn hringinn á tveimur mánuðum og ætlar meðal annars til Fiji eyja, Nýja Sjálands, Malasíu og Suður Afríku.
Þar sem ég var með bílinn fram á mánudag tók ég smá bíltúr um nágrennið á sunnudag og mánudag og skoðaði borgina auk þess sem ég skutlaði Þresti (Polly) út á flugvöll á sunnudagskvöldið. Síðan í dag fór ég með Steina og Gunnhildi í bíltúr um nágrenni Seattle þar sem við skoðuðum meðal annars Tachoma Narrows brúnna.
Á myndasíðunni má sjá nokkrar myndir frá öllum þessum ævintýrum.
Svo til að toppa þetta allt saman er ég búinn að kaupa mér miða á þetta og flug til LA föstudagsmorguninn 30. apríl og til baka mánudagsmorguninn 3. maí.
Núna eru næstum 10 þúsund gestir búnir að skoða síðuna mína. Sá sem verður númer 10 þúsund fær ókeypis bjór á Coachella hátíðinni.
Ritað af Ingvar [23:23]
Kominn tími á blogg
Núna er ég hálfnaður í prófum og búinn að halda aðra kynninguna mína. Prófið var í Structrual Dynamics og gekk held ég alveg ágætlega nema að kennaranum datt í hug að láta okkur bylta, margfalda og ég veit ekki hvað og hvað 4x4 fylkjum í höndunum. Svo var ég í dag með kynningu á forrtinu mínu sem áhugasamir geta nálgast hér. Svo á morgun er próf í FEM. Og á föstudaginn á ég að halda fyrirlestur um brunavarnir á stál mannvirkjum. Já, og eins og alltaf er það að hafast að klára allt sem ég þurfti að gera þessa önnina sem sannar enn betur að þetta reddast alltaf.
Annars er það helst að frétta að núna er ég alvarlega að skoða að fara hingað. Það væri ekki leiðinlegt að kíkja í helgarferð til Californiu á tónlistarhátíð.
Svo er það komið á hreint að ég hitti familiuna mína í LAS VEGAS 14. júni þaðan sem við ætlum að skoða Grand Canyon, Hoover Dam og svo keyra til Los Angeles, San Fransisco, og að lokum hingað norður til Seattle og skoða fullt á leiðinni.
Ritað af Ingvar [21:37]
Formúlan
Nú er formúlan byrjuð aftur eftir langt hlé. Ég tók mér frí frá ritgerðarskrifum til að horfa á formúluna sem minn maður vann að sjálfsögðu. Samt var þessi keppni frekar lítið spennandi. Spurning hvort að hin liðin ætli aldrei að ná Ferrari.
Annars eru bara rétt tæpar tvær vikur eftir af önninni og ég er á fullu að vinna í að klára öll verkefni sem ég á eftir að gera. Vonandi næ ég að klára ritgerðina á morgun og þá á ég bara eftir að gera þrjú heimadæmi og forritunarverkefni sem gildir 40%. Þetta þarf helst að klárast fyrir helgi svo að ég geti byrjað að einbeita mér að prófunum og kynningunum á ritgerðinni og forritinu.
Ritað af Ingvar [00:49]
Helgin
Það er ansi margt búið að gerast um helgina. Á föstudagskvöldið var kíkt á bari og nokkrir bjórar drukknir í góðra vina hópi.
Á laugardagskvöldið skellti ég mér á íshokkíleik með Settle Thunderbirds á móti Vancouver Giants þar sem Seattle beið lægri hlut 4-2. En þetta var alveg eins og maður hefur séð í bíómyndum menn voru að slást hægri vinstri og harkan var gríðarleg. Þetta var ansi skemmtileg reynsla að fara á svona leik.
Svo klukkan 17:30 í dag var komið að óskarnum þar sem The Lord Of The Rings rakaði verðskuldað að sér 11 verðlaunum. Ég var sáttur við öll verðlaunin nema að ég hefði viljað að Bill Murray hefði unnið fyrir besta karleikara. Það var ansi skrítið að horfa á óskarinn um miðjan dag, en á Íslandi þarf maður eins og flestir vita að vaka til rúmlega 5 á mánudagsmorgni ef maður ætlar að sjá öll verðlaunin.
En á milli þess sem ég hef verið að gera allt þetta skemmtilega hef ég verið að sinna skólanum, enda eru núna ekki nema tvær vikur eftir í kennslu af önninni og svo próf í viku. Ég sé reyndar fram á gríðarlegt álag það sem eftir er að önninni því að ég á eftir að gera tvö 50% verkefni sem ég er ekki byrjaður á. En það hlýtur að reddast eins og alltaf.
Ritað af Ingvar [00:42]