Ingvar

[ þriðjudagur, ágúst 26, 2003 ]

ADSL
Það er kominn þráðlaus ADSL tenging heima. Passar kemur rétt áður en maður fer af landinu.
Ritað af Ingvar [16:24]

[ mánudagur, ágúst 25, 2003 ]

KR
KR er komið í góð mál eftir að hafa rúllað liðinu úr Árbænum upp FJÖGUR - núll. Sigurinn varð enn sætari því að fylkismenn hafa verið að tjá sig um að það hafi verið gott að tapa fyrir Þrótti 5-1 því að þá kæmu þeir grimmari í leikinn við KR. Það var ekki að sjá að fylkir væri að slást um íslandsmeistaratitilinn í gær.
Titilinn er samt ekki kominn í höfn ennþá næst er erfiður leikur við Grindavík í Grindavík og svo er leikur við ÍBV á KR-vellinum og að lokum á KR að spila við Fimleikafélagið úr Hafnarfirði (FH) í Hafnarfirði.
Ritað af Ingvar [08:29]

Formúlan
Ég ætla ekki að tjá mig mikið um formúluna. En ég var mjög ósáttur við minn mann um helgina. 8. sæti er ekki ásættanlegur árangur.
Ritað af Ingvar [08:24]

[ fimmtudagur, ágúst 21, 2003 ]

Fjalar er kominn með bloggsíðu
Fjalar Hauksson er kominn með bloggsíðu þar sem hægt verður að fylgjast með honum í Svíþjóð.
Ritað af Ingvar [06:49]

[ mánudagur, ágúst 18, 2003 ]

Föstudagurinn
Á föstudaginn fór ég í gríðarlega skemmtilegt vinnuparty. Það var haldið út í Viðey og vorum við kominn út í eyju rétt fyrir sex. Þegar þangað var komið var byrjað á að fara í leiki (reyndar í rigningu). En þar var keppt upp á hverjir fengu að byrja að borða. Síðan var byrjað að borða og á boðstólum var alvöru grillmatur. En eftir matinn hélt drykkjan áfram og farið var að syngja. Svo um ellefu leitið þegar allir voru komnir vel í glas enda fólk búið að vera að teyga bjór, rauðvín, eplasnafs, skriðdrekaolíu og Jagermaster, og eflaust eitthvað meira, í miklu magni var haldið af stað til "Íslands". Þar var kominn rúta sem keyrði fólkið eitthvað lengra. En ég hringdi í bróðir minn og fékk hann til að skutla mér í party til Fjalars. Þar var gríðarstemming og þeir alhörðustu voru mættir. Ég reyndar endist ekki lengi, enda búinn að vera á heljarinnar drykkju frá rétt rúmlega fimm um daginn, var kominn heim einhver tímann milli 2 og 3.

Laugardagurinn
Ég gerði nú lítið á laugardaginn. Svaf eitthvað framyfir hádegi og lá svo bara heima yfir sjónvarpinu. Reyndar ákvað ég að drífa mig með familiíunni niður í bæ um kvöldið og kíkti á flugeldasýninguna og hitti meðal annars Óla og Valdísi sem voru gríðarhress, enda var Óli ný kominn úr prófi dauðans. Að lokinni flugeldasýningu dreif ég mig bara heim enda var ég ekki í neinu stuði til að standa í einhverjum troðningi á öldurhúsum bæjarins.
Ritað af Ingvar [02:33]

[ föstudagur, ágúst 15, 2003 ]

Atli er kominn með bloggsíðu
Ég vil hvetja alla til að skoða hana. Og einnig til að hvetja hann til að vera duglegur að skrifa.
Ritað af Ingvar [05:46]

[ mánudagur, ágúst 11, 2003 ]

KR hélt toppsætinu í gær
KR vann frækinn sigur á KA í gærkvöldi 2 - 1. Sigurmarkið var skorað á 92 mínútu. KR átti reyndar fimm dauðafæri í fyrri hálfleik en því miður tókst bara einu sinni að koma boltanum í netið. Og KA menn jöfnuðu svo í næstu sókn með fáránlegu marki.
Ritað af Ingvar [08:24]

Fór tvisvar í bíó um helgina
Á föstudaginn fór ég á Bruce Almighty. Hún var alveg fínasta skemmtun, reyndar skemmdi svolítið fyrir að filman slittnaði þegar það var korter eftir og það tók einhverjar fimm mínútur að koma myndinni í gang aftur.
Síðan á laugardagskvöldið fór ég á The Pirates of the Caribbean sem var ágætis afþreying. Mæli frekar með Bruce Almighty.
Ritað af Ingvar [08:18]

Undirbúningur fyrir brottför til USA
Núna er ég kominn með vegabréfsáritun þannig að það fer allt að verða tilbúið. Í gær var mánuður í brottför þannig að það er farið að styttast verulega í brottför.
Ritað af Ingvar [08:13]

[ þriðjudagur, ágúst 05, 2003 ]

Formúlan
Formúlan fór ekki eins og best verður á kosið á sunnudaginn. Barricello keyrður út fyrir fyrstu beyju og svo sprakk afturdekk hjá Schumacher þegar 3 hringir voru eftir. Það var alla vega bót í máli að Raikonen var líka keyrður út í byrjun. En að sama skapi er vont að Montoya skuli hafa unnið því að nú munar aðeins 6 stigum á Schumacher og Montoya og tveimur stigum á Ferrari og Williams.
Ritað af Ingvar [10:39]