Springfield
Er núna staddur í Springfield Oregon á leið upp til Seattle. 1800 mílur í valnum frá Las Vegas til Los Angeles til San Francisco til Eureka og loks hingað til Springfield. Á morgun er svo stefnan að keyra til Portland og eyða tveimur nóttum þar og svo koma upp til Seattle á laugardaginn.
Lengri ferðasaga og myndir koma svo seinna!!!
Ritað af Ingvar [23:35]
Erfitt líf??
Eftir fimm daga fyllerí er ég staddur á McCarran flugvelli í Las Vegas að bíða eftir fjölskyldunni sem kemur eftir tæpa tvo tíma. Brilliant að komast á frítt þráðlaust net þegar maður er að bíða á flugvellinum.
Á miðvikudaginn eftir síðasta próf var tilvalið að fá sér smá bjór, það var byrjað í hádeginu og verið að fram að miðnætti. Á fimmtudaginn fréttum við að party-i þar sem allir sem voru á leiðinni heim voru að kveðja, það var samt frekar bandarísk stemming í því party-i fólk að drekka bjór og spila fótboltaspil og flestir farnir heim um miðnætti. Á föstudaginn var ákveðið að hittast heima hjá Steina og Gunnhildi til að grilla hamborgara og drekka smá áfengi sem endaði með GammelDansk fylleri þar sem GammelDansk var skolað niður með Íslensku brennivíni.
Á laugardaginn var svo útskrift hérna í UW en Helga, Pétur og Þröstur voru að útskrifast og við byrjuðum á að fagna með Helgu á laugardagskvöldið í alvöru Íslensku party-i sem stóð undir morgun. Og svo að lokum var komið að því að fagna Pétri með grillveislu í Magnuson Park í frábæru veðri og ekki var verra að fá íslenskt lambalæri og lakkrís. Helga og Pétur fá bestu þakkir fyrir frábærar veislur.
Dagurinn í dag fór svo í að pakka og ákveða hvað ég þyrfti að hafa með til Las Vegas. Svo komu Steini og Gunnhildur og skutluðu mér út á flugvöll og fá fyrir það bestu þakkir. Það var ansi magnað að koma útúr flugvélinni hérna áðan því að það fyrsta sem maður sá var Spilakassar.
Ritað af Ingvar [22:13]
BÚINN Í PRÓFUM
Ég tók síðasta prófið í gær, ég hefði getað lært í þrjár vikur eða ekki neitt og samt gengið jafn vel/illa í því. En allavega núna er bara tóm gleði framundan. Útskriftarveisla á laugardag og sunnudag, kjósa í forsetakosningunum á sunnudag og svo Las Vegas á mánudaginn og mánaðar roadtrip um vesturströnd Bandaríkjanna. Ég ætla að reyna að setja inn einhver blogg þegar ég er á roadtripinu þegar ég kemst í nettengingu.
Þrátt fyrir mörg sniðug svör í getraun mánudagsins er Reynir sigurvegarinn, en flestir voru með fartölvu undir hendinni (meðal annars ég). Það er fyndið hvað fartölvan er farinn að skipta miklu máli fyrir mann. Maður er með öll verkefni sem maður hefur gert, ljósmyndir, tölvupóst o.s.frv. inn á henni. Auk þess sem ég var búinn að eyða allri helginni í að gera tvö lokaverkefni sem voru inn á tölvunni.
Að lokum er vert að minnast á það í dag eru 9 mánuðir síðan ég flutti hingað út.
Ritað af Ingvar [15:54]
Próf
Eins og sést á fjölda blogga þessa dagana er ég í prófum og er því oft að taka pásur.
Ég tók fyrra prófið mitt í morgun og skilaði inn síðustu verkefnunum. Núna er allt búið nema seinna prófið sem er á miðvikudaginn. Eini gallinn er að þetta próf verður eins og sögupróf þar sem maður þarf að kunna alla bókina utan af. Þetta próf verður í kúrsinum Geotechnical Earthquake Engineering sem Steven Kramer höfundur bókarinnar kennir.
Ritað af Ingvar [14:53]
Spurning dagsins
Brunabjöllurnar fóru í gærkvöldi í gang að ástæðulausu í húsinu sem ég bý í. Spurning dagsins er: Hverju "björguðu" flestir útúr húsinu?
Svar kemur fyrir helgi.
Ritað af Ingvar [12:00]
Föstudagur
Það er víst föstudagur í dag, ég hef ekki orðið mikið var við það þar sem ég er búinn að vera að læra í allan dag og þangað til þetta er skrifað klukkan 11 að kvöldi. Það gerðist reyndar eitt mjög ánægjulegt í dag, ég fór í síðast tímann minn á skólaferlinum. Nú á ég einungis eftir að klára tvö verkefni (sem klárast vonandi á morgun) og fara í tvö próf á mánudag og miðvikudag og þá er þessi önn búin.
Svo eftir sumarfrí get ég farið að einbeita mér að fullu að lokaverkefninu.
Ritað af Ingvar [23:59]
Fjölmiðlafrumvarpið
Ég veit nú ekki hvað hefur verið í gangi í fjölmiðlum á Íslandi undanfarið og veit því ekki nákvæmlega um hvað þetta margumrædda frumvarp fjallar. En að láta þjóðina ákveða svona er að ég held mikil vitleysa, fólk nennir almennt ekki að kynna sér málið og þeir sem eiga eftir að kynna fólki málið eru einmitt þeir sem frumvarpið hefur mest áhrif á, þ.e. fjölmiðlar. Auk þess eiga þessar kosningar eftir að kosta milljónir, það er nógu mikið bruðl að vera að hafa forsetakosningar í sumar. Verst að það er eiginlega ekkert val í þessum forsetakosningum, og Ólafur er sniðugur að gera þetta eftir að framboðsfrestur er runninn út. Því að eftir þetta er embætti forseta orðið miklu stærra heldur en að taka á móti erlendum gestum og láta bjóða sér á fótboltaleik með Chelsea.
Spurning hvað Baugur hefur borgað Ólafi fyrir þetta??
Fólk vill kannski fræða mig um hvað þetta frumvarp snýst?
Ritað af Ingvar [22:22]