Farinn á múluna
Ég set fréttir inn næst þegar ég kemst á netið
Ritað af Ingvar [02:11]
Meistaranemi í virkjanafræðum!!
Ritað af Ingvar [10:27]
Dæmigerður þjóðverji
Ritað af Ingvar [02:02]
Þýskaland dagur 3
Í dag erum við búnir að skoða Karlsruhe í 38°c hita og vorum alveg að drepast svo að við fórum í sund til að kæla okkur. Í kvöld erum við á leiðinni á pubarölt og verðum örugglega í miklu stuði.
Ritað af Ingvar [12:43]
Alvöru bygging
Ritað af Ingvar [12:41]
KR
KR tókst víst ekki að vinna fylki þannig að nú er fylkir kominn í efsta sætið í deildinni og vonandi er það ekki komið til að vera.
Ritað af Ingvar [02:14]
Þýskaland
Ég og Jón erum núna búnir að vera í þýskalandi í tvo daga í yfir 30°c hita (Þannig að núna er á hreinu að Toggi var ekkert að ýkja á msn-inu). Á laugardaginn fórum við til Heidelberg sem er gömul borg sem ekki skemmdist mikið í stríðinu og því er þar mikið af gömlum og fallegum byggingum, meðal annars gríðarmagnaður kastali sem var hrunin að hluta. Svo í gær fórum við Europa-Park sem er stærsti skemmtigarður þýskalands og þar prófuðum við fullt af rússibönum og allskonar skemmtilegum tækjum. Í dag er stefnan að ferðast aðeins um Karlsruhe og sjá hvað borgin hefur upp á að bjóða.
Ritað af Ingvar [02:13]
Er þetta heilbrigt maður bara spyr.
Ritað af Ingvar [03:33]
KR eru efstir í deildinni
Áhyggjur mínar reyndust óþarfar og KR vann val nokkuð örugglega þó að það hefði þurft valsmark til að vekja KR-ingana þá var sigurinn aldrei í hættu.
Ritað af Ingvar [13:54]
Gleðilega Hátíð
Til hamingju öllsömul með þjóðhátíðardaginn.
Ritað af Ingvar [13:54]
KR-valur
Nú er KR að fara að spila við hitt Reykjavíkur stórveldið (val) í kvöld. En eftir síðasta leik þar sem KR rétt marði HK af öllum liðum er ég ekkert alltof bjartsýnn á þennan leik. En samt hefur KR nú yfirleitt unnið val og eftirminnilegt er þegar KR vann val 9-1. Ég mæti á leikinn og hver mína menn til sigurs.
Ritað af Ingvar [03:34]
Formúlan
Formúluna fór eins og við var að búast, MS fyrstur en því miður var RB ekki í nema fimmta sæti sem er reyndar ágætt eftir að hafa misst væng í byrjuninni. Og nú er spennan að verða óbærileg aðeins 5 dagar í brottför til þýskalands.
Ritað af Ingvar [03:33]
Körfubolti
Fór í körfubolta í gær í góðra vina hópi. Það var vel tekið á því og maður er aðeins eftir sig eftir þetta. Svo var bíllinn eitthvað að stríða mér í gær vildi ekki fara í gang eins og hann væri rafmagnslaus og svo aftur í morgun. Þannig að ég dreif mig í að kíkja á verkstæði og þar var mér sagt að rafgeymirinn væri ónýtur sem mig reyndar grunaði þannig að ég dreif mig áðan og keypti nýjan og hann er kominn í bílinn og hann flýgur í gang.
Ritað af Ingvar [05:48]
Mikil vinna = Bloggleysi
Þar sem ég hef lítið sem ekkert gert annað en að vinna núna í tvær vikur hef ég ekki haft neitt til að segja frá. Nú er spennan farinn að magnast og aðeins 9 dagar í brottför til hrúunnar (Karlsruhe) og á Formúluna í Nurnburgring. Ekki skemmir fyrir að það er víst hitabylgja í þýskalandi og bjórinn er ódýr og góður þar.
Ritað af Ingvar [04:59]
Formúlan
Formúlan í gær var æsispennandi og JPM og KR héldu þetta út til enda og þar á eftir kom svo Schumacher sem hefði með smá heppni geta unnið keppnina. Svo er bara Kanada næst en þar held ég að Ferrrari verði í sérflokki. Og þar á eftir (eftir fjórar vikur) er komið að Nurnburgring og þar verðum ég, Jón og Toggi í góðu stuði og styðjum okkar menn.
Ritað af Ingvar [04:01]