Chelsea 4 - Celtic 2
Á laugardaginn fór ég á fótboltaleik milli Chelsea og Celtic, það var algjör snilld að sjá loksins fótboltaleik eftir að hafa ekki séð einn einasta leik núna í sumar.
Maður varð ekki fyrir neinum vonbrigðum á þessum leik, 6 mörk þar af 4 hjá Chelsea og 2 hjá Celtic. Ekki skemmdi heldur fyrir að Eiður Smári skoraði eitt mark og lagði upp annað en hér að neðan má sjá mynd þegar hann er nýbúinn að skora og einnig þegar nafnið hans sést upp á markatöflunni.
Völlurinn virkar kannski hálftómur á þessum myndum, en þess má geta að það voru yfir 30þús áhorfendur, sem virkar frekar lítið á tæplega 70þús manna leikvangi!
Svo til að toppa helgina þá unnu bæði M. Schumacher og KR um helgina.
Ég er núna búinn að gefast upp á myndakerfinu þannig að ef einhver veit um gott frítt myndakerfi á netinu þá væri ágætt að fá að vita um það í athugasemdunum.
Ritað af Ingvar [11:50]
<< Home