Ingvar

[ miðvikudagur, janúar 14, 2004 ]

Undanfarin vika
Síðasta miðvikudag bauð Armin mér og Steina og Gunnhildi í heimsókn til sín en ekki vildi betur til en að hann skar sig þegar hann var að þrífa þannig að við þurfum að fara með hann á bráðavaktina. Maður hefur oft séð fólk í bíómyndum bíða í andyrinu á bráðavaktinni, og þá oftar en ekki verður fólk mjög óþolinmótt og skil ég það vel eftir þessa heimsókn. Því það tók um tvo og hálfan tíma fyrir læknana að skoða sárið og sauma fjögur spor. Við styttum okkur meðal annars stundir með því að horfa á eldgamla X-files þætti og að skoða fiskabúr sem var í andyrinu. Síðan allt í einu sáum við eitthvað lítið þjóta eftir gólfinu en þá var það mús sem var búin að vera á spítalanum í einhvern tíma til að gera grikk í fólki.

Á föstudaginn var íslendinga hittingur auk þess sem nokkrum útlendingum var boðið líka. Það var byrjað í mat heima hjá Steina og Gunnhildi þar sem meðal annars var hangikjöt og harðfiskur á boðstólum. Seinna um kvöldið var farið niður í bæ á klúbb þar sem spiluð var diskótónlist sem vakti mismikla lukku.

Ég er að vinna í að koma mér í lærdómsgírinn aftur eftir jólafrí. En fyrsta heimaverkefni vetrarins liggur í valnum og á ég að skila því á morgun. Auk þess hef ég verið mjög duglegur að fara í ræktina en stefnan er að fara allavega þrisvar í viku.
Ritað af Ingvar [01:03]

<< Home