Thanksgiving
Núna eru rúmar tvær vikur síðan ég bloggaði síðast og kominn tími til að skrifa eitthvað. Síðasta fimmtudag var Þakkargjörðardagurinn haldinn hátíðlegur hér í bæ. Við íslendingarnir hittumst heima hjá Pétri og Soffiu, þar var borðaður gríðargóður kalkúnn sem Soffia og Gunnhildur höfðu eldað ásamt því sem það var nóg af meðlæti. Byrjað var að borða upp úr klukkan 6 og síðan var setið við matarborðið til rúmlega 3 um nóttina. Kalkúnninn var næstum því kláraður, 12 vínflöskur lágu í valnum og einhverjar kippur af bjór. En þess má geta að það voru 10 manns þegar mest var.
Föstudagurinn var tekinn rólegur, fyrst kíkti ég með Armin í bæinn og svo fórum við heim til hans og Polí-Þröstur kom líka og við horfðum saman á Lord of the rings - Two Tower: Extended edition. Og ég verð að segja að þessi útgáfa af myndinni er mun betri en bíóútgáfan. Og nú hlakkar mann bara til að fara í Smárabíó um jólin til að sjá Return of the king.
Síðan á laugardaginn hef ég ekki gert neitt annað en að læra. Því að í dag átti ég að skila ritgerð og tveimur heimadæmum, sem hafðist allt að lokum seint í gærkvöldi. Nú er ég líka búinn með allt sem ég þarf að gera fyrir próf, og kominn í upplestrarfrí. En upplestrarfrí er eitthvað sem ég er ekki vanur auk þess sem bæði prófin mín eru heimapróf þannig að ég á sennilega ekki eftir læra mikið fyrr en ég fæ prófin í hendurnar um þar næstu helgi.
Nú eru tæpar þrjár vikur í að ég fari til Íslands í jólafrí. Skrítið hvað þessir tæpu þrír mánuðir sem ég er búinn að vera hérna í Seattle hafa flogið frá manni.
Ritað af Ingvar [15:20]
<< Home