Ingvar

[ mánudagur, nóvember 03, 2003 ]

Halloween

Á föstudaginn var Halloween eins og flestir vita. Við íslendingarnir vorum ekkert á því að klæða okkur upp á í tilefni dagsins fyrir utan Þröst sem ákváð að klæða sig í álfaprinsessu búning. Ég skellti mér á tónleika með íslensku hljómsveitinni Singapore Sling (ég hafði nú samt ekki gerst svo frægur að hafa heyrt í þeim áður). Þetta voru hinir bestu tónleikar og voru hljómsveitarmeðlimir ansi hissa að sjá fjóra íslendinga á tónleikunum. Tónleikarnir voru til að verða tvö um morgunin en þá loka ákúrat allir barir í Seattle. Því miður var klukkan þá orðin of margt til að finna Þröst og sjá hann í búningnum, kannski að maður verði orðinn það mikill kani eftir ár að maður skelli sér í búning og taki þátt í þessari hátíð.

Laugardagurinn var tekin rólega en um kvöldið skellti ég mér á ekta Bandarískan hamborgarastað með Þresti Frey (En til að fyrirbyggja allan misskilning þá er það ekki sami Þröstur og klæddi sig í álfaprinsessu búningin). Þegar við vorum búnir að borða kíktum við niður að Football vellinum hjá skólanum þar sem Washington Husky var að spila við Oregon. Við áttum reyndar ekki miða þannig að við röltum bara í kringum völlinn og upplifðum stemminguna. Það var reyndar rigning og frekar kalt þannig að við skelltum okkur heim til Armins og horfðum á restina af leiknum þar. En þess má geta að Washington vann leikinn með miklum mun.

Dagurinn í gær fór svo í lærdóm og að horfa á 24 en Þröstur lánaði mér fyrstu seriuna á DVD og ég horfði á fyrstu 12 þættina um helgina og á örugglega eftir að klára að horfa á þá fljótlega í vikunni.
Ritað af Ingvar [15:28]

<< Home