Föstudagurinn
Á föstudaginn fór ég í gríðarlega skemmtilegt vinnuparty. Það var haldið út í Viðey og vorum við kominn út í eyju rétt fyrir sex. Þegar þangað var komið var byrjað á að fara í leiki (reyndar í rigningu). En þar var keppt upp á hverjir fengu að byrja að borða. Síðan var byrjað að borða og á boðstólum var alvöru grillmatur. En eftir matinn hélt drykkjan áfram og farið var að syngja. Svo um ellefu leitið þegar allir voru komnir vel í glas enda fólk búið að vera að teyga bjór, rauðvín, eplasnafs, skriðdrekaolíu og Jagermaster, og eflaust eitthvað meira, í miklu magni var haldið af stað til "Íslands". Þar var kominn rúta sem keyrði fólkið eitthvað lengra. En ég hringdi í bróðir minn og fékk hann til að skutla mér í party til Fjalars. Þar var gríðarstemming og þeir alhörðustu voru mættir. Ég reyndar endist ekki lengi, enda búinn að vera á heljarinnar drykkju frá rétt rúmlega fimm um daginn, var kominn heim einhver tímann milli 2 og 3.
Laugardagurinn
Ég gerði nú lítið á laugardaginn. Svaf eitthvað framyfir hádegi og lá svo bara heima yfir sjónvarpinu. Reyndar ákvað ég að drífa mig með familiíunni niður í bæ um kvöldið og kíkti á flugeldasýninguna og hitti meðal annars Óla og Valdísi sem voru gríðarhress, enda var Óli ný kominn úr prófi dauðans. Að lokinni flugeldasýningu dreif ég mig bara heim enda var ég ekki í neinu stuði til að standa í einhverjum troðningi á öldurhúsum bæjarins.
Ritað af Ingvar [02:33]
<< Home