Myndir
Loksins er ég búinn að fá myndirnar af Red Hot Chilli Peppers tónleikunum úr framköllun. Þær eru allar mjög gráar þar sem þetta var tekið á einnota myndavél í myrkri. En þar að auki hafa myndirnar klúðrast í framköllun því að það virðist vera sem að það sé alltaf hálf og hálf mynd á hverri mynd. Ég skellti þeim samt öllum á netið.
Svo má lesa ágætis lýsingu af tónleikunum hér og hér.
Ritað af Ingvar [13:51]
Mögnuð upplifun
Á föstudagskvöldið bauð Armin mér og nokkrum í viðbót heim til sín þar sem hann ætlaði að sýna okkur Wizard of Oz með Pink Floyd - Dark Side of the Moon sem soundtrack. En þetta var alveg mögnuð upplifun því að tónlistinn passar mjög vel með myndinni þó að diskurinn þurfi að renna þrisvar í gegn með myndinni. Ég mæli með að fólk prófi þetta en málið er að setja á play á tónlistina þegar ljónið í byrjun myndarinnar urrar í þriðja skiptið og svo muna eftir að setja repeat á diskinn. Hér má sjá nánari umfjöllun um þetta!
Ritað af Ingvar [13:39]
Mánudagur og Þriðjudagur
Eftir rólega helgi er búið að vera nóg að gera núna í þessari viku. Á mánudaginn var móttaka hjá Valle þar sem allir styrkþegarnir komu saman og skemmtu sér með þeim sem standa að sjóðnum, það eina sem skemmdi þennan dag að það var metrigingardagur tæpar 5 tommur á 24 tímum. En maður lét sig hafa það að rölta út í jakkafötum með regnhlíf (hér rignir lóðrétt!).
Svo í gærkvöldi fór ég á tónleika með Red Hot Chilli Peppers í Key Arena. Það var brjálað stuð og ég ætla að setja myndir á netið þegar ég er búinn að láta framkalla einnota myndavélina mína, en það átti formlega að vera bannað að vera með myndavél en ég ákvað að reyna að smygla einnota myndavél inn sem var ekkert mál þrátt fyrir að það hafi verið leitað á öllum sem komu á tónleikana, en svo þegar maður kom inn voru ansi margir með myndavél.
Það sem lifir af vikunni verður maður að vera duglegur að læra svo að maður þurfi ekki að vera að læra alla helgina auk þess sem það er farið að styttast í miðsvetrarprófin.
Ritað af Ingvar [12:03]
Formúla 1
Þar sem að dagatalið fyrir Formúlu 1 á næsta ári er komið er ekki úr vegi að byrja velta fyrir sér hvort að maður eigi að skella sér á keppni á næsta ári. Jafnvel hvort að maður eigi að fara á fleiri en eina, t.d. væri tilvalið að fara til Montreal í Kanada 13. júní og svo Indianapolis í USA 20. júní. Svo er einnig ekkert svo langt að skella sér yfir til Shanghai í September þó að sé sennilega frekar dýrt. Eða þá að skella sér til Brasilíu á lokakeppnina.
Ritað af Ingvar [16:07]
Fór í leikfimi áðan
Fór í leikfimi í fyrsta skipti áðan hérna í skólanum. Þetta er svakalega aðstaða og þarna er allt til alls. Þegar maður mætir á staðinn fær maður hreint handklæði og lykil að skáp til að geyma dótið sitt í. Síðan getur maður fengið öll áhöld lánuð eins og t.d. bolta og spaða. Ég og Þröstur vorum mættir niður eftir rétt um klukkan 6 og hjóluðum í hálftíma og teygðum svo á. Síðan fórum við í veggja fótbolta í einum af heilmörgum skvass sölum sem eru í húsinu og voru þar til að verða 9.
Nú er stefnan að fara í leikfimi að minnsta kosti þrisvar í viku.
Ritað af Ingvar [23:20]
Schumacher meistari
Michael Schumacher er heimsmeistari í sjötta skiptið á ferlinum sem er met. Ferrari er einnig meistari bílasmiða, þannig að það er fullt hús hjá Michael Schumacher í ár.
Ritað af Ingvar [00:59]
Gærkvöldið
Gærkvöldið var algjör snilld. Kvöldið byrjaði á því að ég, Steini og Gunnhildur fórum í mat heim til Armin sem er þýskættaður Ameríkani frá New York fylki. Hann eldaði lax, Steini og Gunnhildur komu með salat og hvítlauksbrauð og ég mætti með bjórinn. Þar vorum við til um klukkan 10, en þá röltum við af stað í the Scan House, en komum við hjá Þresti. Þegar við komum í partyið var þar samankomin gríðarlegur fjöldi af fólki og leyniorðið til að komast inn í húsið var að tala íslensku við dyravörðinn (sem btw var íslenskur). Húsið var stappað af fólki og músíkin ómaði.
Um tólfleytið byrjuðu hlutirnir að gerast. Löggan mætti á svæðið og leysti partyið upp, en fyrir tveimur vikum voru óeirðir hér í hverfinu þegar eitthvað fólk fann upp á því að það væri sniðugt að velta bíl (VOLVO). Og þegar löggan mætti á svæðið sauð uppúr og kveikt var í dýnum út á götu og eitthvað meira. Löggan vill ekki að sú uppákoma endurtaki sig svo að öll party eru leyst upp þegar hávaðinn fer yfir einhverja ákveðna DB tölu.
Þetta var eins og í einhverri bíómynd því að það komu a.m.k. 10 lögreglubílar og 20 löggur til að leysa upp partyið. Svo þegar við vorum að rölta út sagði ein löggan við okkur að við ættum bara að finna okkur annað party og glotti út í annað. Steini tók slatta af myndum af þessari uppákomu og það verður gaman að skoða þær, og ég vona að hann setji þær á netið.
Eftir smá reikistefnu fundum við annað party. Og vorum þar eitthvað frameftir nóttu. Svo um klukkan 3 vorum við orðin svo svöng og allir matsölustaðir lokaðir en ennþá var hægt að komast í bílalúguna á Jack in the Box. Svo að við hringdum á leigubíl til að geta fengið okkur hamborgara og franskar. Svo sögðum við bara leigubílnum að fara þegar við vorum búin að panta okkur matinn. Hitt fólkið í bílaröðinni átti ekki til orð yfir okkur!
Ritað af Ingvar [22:50]
Hamingjuóskir til Ástu og Togga
Ég vil óska Ástu og Togga til hamingju með frumburðinn sem fæddist klukkan 11.29 að þýskum tíma í dag föstudaginn 10. október. Á síðunni þeirra er hægt að sjá myndir af stráknum og einnig upplýsingar um hvað hann var stór og þungur.
Ritað af Ingvar [19:15]
Formúla 1
Loksins sér maður Formúlu 1 hér í USA. En ég er að horfa á fyrri tímatökuna í beinni útsendingu á stöð sem heitir Speed. Jarno Trulli er fyrstur svo kemur litli Schumacher og þar fyrir aftan er stóri Schumacher. Þar fyrir aftan koma Mclaren menn og er David Coultard á undan og svo er Alonso í sjötta. Minni liðin eru núna að keyra sína tímatöku hringi þannig að ég reikna ekki með að niðurröðun efstu manna breytist.
Verst er að ég missi af tímatökunni annað kvöld því að ég er að fara í party í the Scan House. En ég ætla samt að horfa á keppnina á laugardagskvöldið klukkan 10 af staðartíma og sjá Schumacher landa meistaratitlinum.
Ritað af Ingvar [23:52]
Kominn með Kapal og Net heim til mín
Loksins í morgun fékk ég internetið heim til mín og ekki skemmdi fyrir að ég fékk Digital Cable í leiðinni. Comcast var búið að boða komu sína í morgun milli klukkan 8 og 12. Og til þess að ég yrði ekki ný vaknaður þegar þeir myndu koma ákvað ég að rífa mig upp klukkan hálf átta (hef ekki vaknað svona snemma í nokkrar vikur). Svo lá ég bara í rúminu og horfði á eitthvað hundleiðinlegt sjónvarpsefni á þessu 4 stöðvum sem ég náði á inniloftnetinu, meðal annars the morning show. Svo klukkan 11:57 komu þeir, ég hefði getað sofið út eftir allt saman!
Ritað af Ingvar [15:24]
Formlega orðinn "Kani"
Nú er ég orðinn "Kani" því að ég fékk Social Security Number í pósti um helgina og er því orðinn fær í flestan sjó.
Eftir mikla vinnu um helgina liggja tvö heimaverkefni að mestu í valnum og nú er stefnan sett á að ná að klára bæði heimaverkefnin í þessari viku fyrir helgi.
Ritað af Ingvar [13:13]
Íslendingaparty
Í gærkvöldi var haldið íslendingaparty hér í Seattle, þangað mættu flestir af þeim sem stunda nám hérna í UW. En allt í allt eru um 15 íslendingar í skólanum hérna. Það var gríðarstuð í partyinu og meðal annars lakrís, harðfiskur og íslenskt brennivín á boðstólum. Partyið byrjaði um kvöldmatarleitið þar sem flestir komu með eitthvað á grillið. Síðan var spjallað um alla heima og geima og drukkinn bjór og íslenskt brennivín og eitthvað meira (Vantaði bara hákarlinn!). Rétt fyrir klukkan 1 var ákveðið að kíkja á pöbbinn þó að við vissum að það megi ekki selja áfengi hérna eftir klukkan 2. Þar vorum við til 2 eða þangað til glösin voru tekinn af okkur sem sum voru hálffull af áfengi.
Síðan tvístraðist hópurinn og hélt heim á leið. Ég tók leigubíl með nokkrum öðrum og það var mikil upplifun. Bílstjórinn var klæddur í Elvis búining og með barta og gleraugu og allan pakkann. Og til að toppa það spilaði hann ekkert nema tónlist eftir kónginn og var stoltur af.
Ritað af Ingvar [17:27]
Kaupgleði
Á fimmtudaginn var ég mjög kaupglaður keypti mér hjól, DVD spilara og útvarpsvekjaraklukku. En allt þetta fékk ég í Target á góðum prís. Ég stefni að því að setja myndir af þessum gæðagripum en hjólið er þýskt af gerðinn Schwinn og kostaði 135$ og DVD spilarinn af Panasonic gerð og kostaði ekki nema 80$ og útvarpsvekjarinn er af Sony gerð og kostaði 15$.
En nú er samt komið að skuldadögum og ég þarf að vera í skólanum alla helgina til að klára tvö verkefni, sem ég á að skila á mánudaginn, vegna þess að ég er búinn að vera svo latur að læra núna í vikunni auk þess gríðar mikill tími hefur farið í verslunarferðir.
Ritað af Ingvar [17:17]
Loksins kominn með síma
Ég fór í gær og tékkaði betur á því hvort að ég gæti fengið síma án þess að hafa SS# og þá kom í ljós að það væri ekkert mál að fá Prepaid og gaurinn sem ég talaði við síðast hafi bara ekki vitað neitt í sinn haus. En allavega er ég núna kominn með símanúmer og því auðveldara fyrir mig að hafa samskipti við umheiminn.
Ef þið viljið hringja í mig þá er númerið:
206-384-0681
svo þarf reyndar að bæta einhverjum tölum við fyrir framan til að hringja milli landa.
Þetta er snilld og nú kostar mínútan heim til íslands um 43 cent í staðinn fyrir einhverjar 200kr með íslenska númerinu mínu.
Ritað af Ingvar [13:22]