Gærkvöldið
Gærkvöldið var algjör snilld. Kvöldið byrjaði á því að ég, Steini og Gunnhildur fórum í mat heim til Armin sem er þýskættaður Ameríkani frá New York fylki. Hann eldaði lax, Steini og Gunnhildur komu með salat og hvítlauksbrauð og ég mætti með bjórinn. Þar vorum við til um klukkan 10, en þá röltum við af stað í the Scan House, en komum við hjá Þresti. Þegar við komum í partyið var þar samankomin gríðarlegur fjöldi af fólki og leyniorðið til að komast inn í húsið var að tala íslensku við dyravörðinn (sem btw var íslenskur). Húsið var stappað af fólki og músíkin ómaði.
Um tólfleytið byrjuðu hlutirnir að gerast. Löggan mætti á svæðið og leysti partyið upp, en fyrir tveimur vikum voru óeirðir hér í hverfinu þegar eitthvað fólk fann upp á því að það væri sniðugt að velta bíl (VOLVO). Og þegar löggan mætti á svæðið sauð uppúr og kveikt var í dýnum út á götu og eitthvað meira. Löggan vill ekki að sú uppákoma endurtaki sig svo að öll party eru leyst upp þegar hávaðinn fer yfir einhverja ákveðna DB tölu.
Þetta var eins og í einhverri bíómynd því að það komu a.m.k. 10 lögreglubílar og 20 löggur til að leysa upp partyið. Svo þegar við vorum að rölta út sagði ein löggan við okkur að við ættum bara að finna okkur annað party og glotti út í annað. Steini tók slatta af myndum af þessari uppákomu og það verður gaman að skoða þær, og ég vona að hann setji þær á netið.
Eftir smá reikistefnu fundum við annað party. Og vorum þar eitthvað frameftir nóttu. Svo um klukkan 3 vorum við orðin svo svöng og allir matsölustaðir lokaðir en ennþá var hægt að komast í bílalúguna á Jack in the Box. Svo að við hringdum á leigubíl til að geta fengið okkur hamborgara og franskar. Svo sögðum við bara leigubílnum að fara þegar við vorum búin að panta okkur matinn. Hitt fólkið í bílaröðinni átti ekki til orð yfir okkur!
Ritað af Ingvar [22:50]
<< Home