Mánudagur og Þriðjudagur
Eftir rólega helgi er búið að vera nóg að gera núna í þessari viku. Á mánudaginn var móttaka hjá Valle þar sem allir styrkþegarnir komu saman og skemmtu sér með þeim sem standa að sjóðnum, það eina sem skemmdi þennan dag að það var metrigingardagur tæpar 5 tommur á 24 tímum. En maður lét sig hafa það að rölta út í jakkafötum með regnhlíf (hér rignir lóðrétt!).
Svo í gærkvöldi fór ég á tónleika með Red Hot Chilli Peppers í Key Arena. Það var brjálað stuð og ég ætla að setja myndir á netið þegar ég er búinn að láta framkalla einnota myndavélina mína, en það átti formlega að vera bannað að vera með myndavél en ég ákvað að reyna að smygla einnota myndavél inn sem var ekkert mál þrátt fyrir að það hafi verið leitað á öllum sem komu á tónleikana, en svo þegar maður kom inn voru ansi margir með myndavél.
Það sem lifir af vikunni verður maður að vera duglegur að læra svo að maður þurfi ekki að vera að læra alla helgina auk þess sem það er farið að styttast í miðsvetrarprófin.
Ritað af Ingvar [12:03]
<< Home