Ingvar

[ laugardagur, desember 11, 2004 ]

Mastersritgerð
Þá er ritgerðin tilbúin og verður henni skilað á mánudaginn. Fyrir áhugasama þá er hún komin á netið. Fínt í jólagjafir ;)!!
Annars er það að frétta að ég fór á svakalega tónleika á fimmtudaginn þar sem Snow Patrol, Keane, The Shins, The Killers, Franz Ferdinand og Modest Mouse voru að spila. Franz Ferdinand voru án efa lang besta band kvöldsins.
Núna eru ekki nema 10 dagar í að ég fljúgi heim, sem þýðir að ég þarf að fara að byrja að pakka öllu dótinu mínu og sjá hvað ég get tekið með mér í flug og hvað ég þarf að senda landleiðina.
Ritað af Ingvar [15:20]

<< Home