Gleðileg jól
Þá er maður mættur á klakann. Þá er bara að koma sér í jólaskapið. Allavega vil ég óska öllum lesendum þessarar síðu gleðilegra jóla.
Ritað af Ingvar [16:41]
Mastersritgerð
Þá er ritgerðin tilbúin og verður henni skilað á mánudaginn. Fyrir áhugasama þá er hún komin á netið. Fínt í jólagjafir ;)!!
Annars er það að frétta að ég fór á svakalega tónleika á fimmtudaginn þar sem Snow Patrol, Keane, The Shins, The Killers, Franz Ferdinand og Modest Mouse voru að spila. Franz Ferdinand voru án efa lang besta band kvöldsins.
Núna eru ekki nema 10 dagar í að ég fljúgi heim, sem þýðir að ég þarf að fara að byrja að pakka öllu dótinu mínu og sjá hvað ég get tekið með mér í flug og hvað ég þarf að senda landleiðina.
Ritað af Ingvar [15:20]
Glærur
Vegna fjölda áskorana hef ég ákveðið að setja glærurnar á netið. Annars er ég rétt að fatta að þetta sé búið! Núna taka við mánaðarlöng fagnaðarhöld eða þar til ég byrja að vinna í byrjun janúar.
Ritað af Ingvar [13:42]
Ingvar Rafn Gunnarsson Master of Science in Civil Engineering
Vörnin búin og uppáskrifað að ég uppfylli allar kröfur. Nú þarf ég bara að laga nokkur atriði í ritgerðinni sjálfri og skila henni inn í næstu viku. Ritgerðin og glærurnar koma á netið þá!!
Ritað af Ingvar [16:45]