Erfitt líf??
Eftir fimm daga fyllerí er ég staddur á McCarran flugvelli í Las Vegas að bíða eftir fjölskyldunni sem kemur eftir tæpa tvo tíma. Brilliant að komast á frítt þráðlaust net þegar maður er að bíða á flugvellinum.
Á miðvikudaginn eftir síðasta próf var tilvalið að fá sér smá bjór, það var byrjað í hádeginu og verið að fram að miðnætti. Á fimmtudaginn fréttum við að party-i þar sem allir sem voru á leiðinni heim voru að kveðja, það var samt frekar bandarísk stemming í því party-i fólk að drekka bjór og spila fótboltaspil og flestir farnir heim um miðnætti. Á föstudaginn var ákveðið að hittast heima hjá Steina og Gunnhildi til að grilla hamborgara og drekka smá áfengi sem endaði með GammelDansk fylleri þar sem GammelDansk var skolað niður með Íslensku brennivíni.
Á laugardaginn var svo útskrift hérna í UW en Helga, Pétur og Þröstur voru að útskrifast og við byrjuðum á að fagna með Helgu á laugardagskvöldið í alvöru Íslensku party-i sem stóð undir morgun. Og svo að lokum var komið að því að fagna Pétri með grillveislu í Magnuson Park í frábæru veðri og ekki var verra að fá íslenskt lambalæri og lakkrís. Helga og Pétur fá bestu þakkir fyrir frábærar veislur.
Dagurinn í dag fór svo í að pakka og ákveða hvað ég þyrfti að hafa með til Las Vegas. Svo komu Steini og Gunnhildur og skutluðu mér út á flugvöll og fá fyrir það bestu þakkir. Það var ansi magnað að koma útúr flugvélinni hérna áðan því að það fyrsta sem maður sá var Spilakassar.
Ritað af Ingvar [22:13]
<< Home