Skóli og sumarveður
Það er búin að vera þvílík blíða hérna í Seattle, 20 gráður dag eftir dag og þar af leiðandi er erfitt að halda sig inni til að reyna að læra eitthvað. Sem betur fer er ekkert brjálæðislega mikið að gera í skólanum en ég er reyndar að reyna að byrja á lokaverkefninu eins og tími gefst til með kúrsunum. Svo verð ég líka að vera duglegur að læra núna þar sem það eru ekki nema tæpar þrjár vikur í að ég fljúgi niður til Californíu á Coachella.
Annars var ég að kaupa mér Video áðan þar sem ég er búinn að komast að því að það er ómögulegt að ætla að vakna aðra hverja helgi klukkan 3 um nótt til að horfa á formúluna auk þess sem endursýningin er ekki fyrr en klukkan 7 á sunnudagskvöldum. En ég fékk fínt Panasonic video fyrir $60.
Annað kvöld er svo búið að bjóða mér í ÍSLENSKT lambalæri og annað góðgæti í Sesamestreat. Auk þess sem ég get loksins byrjað á páskaegginu í fyrramálið.
Svo langar mig að lokum að vekja athygli á auglýsingaherferð sem er í gangi í sjónvarpinu hérna. En þar er verið að kynna einhverja keppni þar sem aðalvinningurinn er að fara til Íslands að spila miðnæturgolf.
Ritað af Ingvar [19:55]
<< Home