Helgin
Eftir brjálað álag alla síðustu viku var komið að því að slétta aðeins úr klaufunum. Klukkan rétt rúmlega 3 á föstudaginn fór ég ásamt nokkrum úr verkfræðina á the Ram þar sem við fengum okkur nokkra bjóra og smá snarl. Um 6 leytið voru allir hinir orðnir þreyttir eftir álag vikunnar of fóru heim að sofa (þetta voru allt bandaríkjamenn). Þá kíkti ég aðeins heim til að skila af mér skólatöskunni og síðan kom Þröstur (Polly) í heimsókn og við kíktum niður á the Ave til að fá okkur að borða og nokkra bjóra. Síðan kom Armin og félagi hans að hitta okkur og við flökkuðum milli pöbba fram að lokun.
Á laugardaginn vaknaði ég á hádegi og byrjaði að læra þrátt fyrir að úti væri rúmlega 15°c (+60°F) hiti, síðan um kvöldið fórum við út að borða með Armin þar sem hann átti afmæli. Á eftir fórum við heim til Armins að borða kökur og vatnsdeigsbollur sem Gunnsa var búinn að búa til.
Á sunnudaginn var komið að því að nota veðrið. Klukkan tíu um morgunin fórum ég, Armin, Steini og Gunnhildur í hjólatúr. Og hjóluðum við í tæpa tvo tíma eftir hjólastígum borgarinnar, og skoðuðum sumt að því sem fyrir augu bar. Þegar ég var á leiðinni heim þá ákváð ég að það væri ekki hægt að vera inni að læra í þessu veðri, en Þröstur var þá nýbúinn að hringja og lýsa því yfir að hann ætlaði að eyða deginum utandyra. Þannig að ég ákvað að skella mér með honum niður í miðbæ að skoða mannlífið. Auk þess sem við enduðum daginn á að kíkja upp í nálina.
Á myndasíðunni má sjá myndir teknar í og við nálina.
Ritað af Ingvar [18:00]
<< Home