Helgin
Eftir brjálað álag alla síðustu viku var komið að því að slétta aðeins úr klaufunum. Klukkan rétt rúmlega 3 á föstudaginn fór ég ásamt nokkrum úr verkfræðina á the Ram þar sem við fengum okkur nokkra bjóra og smá snarl. Um 6 leytið voru allir hinir orðnir þreyttir eftir álag vikunnar of fóru heim að sofa (þetta voru allt bandaríkjamenn). Þá kíkti ég aðeins heim til að skila af mér skólatöskunni og síðan kom Þröstur (Polly) í heimsókn og við kíktum niður á the Ave til að fá okkur að borða og nokkra bjóra. Síðan kom Armin og félagi hans að hitta okkur og við flökkuðum milli pöbba fram að lokun.
Á laugardaginn vaknaði ég á hádegi og byrjaði að læra þrátt fyrir að úti væri rúmlega 15°c (+60°F) hiti, síðan um kvöldið fórum við út að borða með Armin þar sem hann átti afmæli. Á eftir fórum við heim til Armins að borða kökur og vatnsdeigsbollur sem Gunnsa var búinn að búa til.
Á sunnudaginn var komið að því að nota veðrið. Klukkan tíu um morgunin fórum ég, Armin, Steini og Gunnhildur í hjólatúr. Og hjóluðum við í tæpa tvo tíma eftir hjólastígum borgarinnar, og skoðuðum sumt að því sem fyrir augu bar. Þegar ég var á leiðinni heim þá ákváð ég að það væri ekki hægt að vera inni að læra í þessu veðri, en Þröstur var þá nýbúinn að hringja og lýsa því yfir að hann ætlaði að eyða deginum utandyra. Þannig að ég ákvað að skella mér með honum niður í miðbæ að skoða mannlífið. Auk þess sem við enduðum daginn á að kíkja upp í nálina.
Á myndasíðunni má sjá myndir teknar í og við nálina.
Ritað af Ingvar [18:00]
Vikulegt blogg
Jæja nú er komið að vikulega blogginu mínu (ég verð svo að reyna að fara að skrifa oftar). En undanfarna viku hef ég gert lítið annað en að læra því að í þessari viku átti ég að skila fimm heimaverkefnum og þar að auki var eitt próf (Þetta hafðist allt saman). Þessi helgi er þriggja daga löng þar sem verið er að fagna forsetanum. Ég þarf samt að eyða bróðurparti helgarinnar í lærdóm. Núna er ég líka að vinna í því að finna mér lokaverkefni og vonandi kemst það á hreint fljótlega.
Svo sá ég mikla sorgarfrétt á mbl.is núna rétt áðan, en það er Tower Records búð í fimm mínútna göngu fjarlægð frá mér. Það er reyndar liðin smá tími frá því ég fór síðast því að ég get ekki farið þarna inn án þess að koma út með annað hvort CD eða DVD disk.
Ritað af Ingvar [18:14]
Kort
Ég er búinn að sjá að margir eru að búa til kort með þeim löndum sem þeir hafa komið til. Og ekki gat ég verið minni maður.
create your own visited country map
or write about it on the open travel guide
Ritað af Ingvar [12:37]
Uppfærsla
Nú er kominn tími á að blogga aðeins. En undanfarna viku er búið að vera nóg að gera. Á laugardaginn var farið á snjóbretti og það kom mér á óvart hvað maður er fljótur að ná tökum á því, en samt er ég nú ekki farinn að treysta mér í stórar brekkur ennþá en það kemur fljótlega. Á sunnudaginn síðasta var svo komið að Superbowl sem var skv. fjölmiðlum hér sá besti frá upphafi. Verst þótti mér reyndar að hafa misst af "aðalatriðinu" sem var í hálfleik.
Mánudagur og þriðjudagur voru miklir lærdómsdagar. Svo á miðvikudagskvöldið var komið að fyrri tónleikum vikunnar en þeir voru með Starsailor, ég þekkti því miður ekki mörg af lögunum þeirra en samt voru þetta mjög góðir tónleikar á flottum stað. Svo á fimmtudagskvöldið var komið að tónleikum með Gomez en þeir vorum mjög góðir á öðrum frábærum stað. Þess má svo geta að ég keypti mér miða á tónleika með David Bowie, í KeyArena þann 14. apríl, á fimmtudaginn.
Núna um helgina þarf ég svo að vera duglegur að læra þar sem það er komið að midterm-um.
Ritað af Ingvar [12:35]