Helgin
Það er búið að vera nóg að gera þessa helgi. Á föstudaginn var hið svokallaða Skanhouseparty en við byrjuðum í party heima hjá Þresti þar sem var grillað og drukkið áður en farið var í Skanhouse. Það var gríðarlegt fjör í báðum partyunum og mikið drukkið.
Á laugardagsmorgunin fór ég svo á snjóbretti ásamt 7 öðrum en við vorum nánast öll að fara í fyrsta skipti á snjóbretti hingað. Þar sem flestir voru að fara í fyrsta skipti gekk þetta misvel hjá fólki en allir voru búnir að ná smátökum á brettinu áður en dagurinn var yfirstaðinn. Þetta var gríðarlegt stuð og núna stefnum við á að fara aftur á næsta laugardag. Fyrst vorum við reyndar að pæla í að fara aftur í dag en í gærkvöldi var ákveðið að gera það ekki, og ég held að það hafi verið sniðug ákvörðun því ég verð að viðurkenna að maður er svolítið þreyttur líkamlega núna.
Ég ætla bara að taka það rólega í dag nema eitthvað annað komi uppá. Svo á morgun er frí í skólanum og þann dag ætla ég að nota til að klára heimadæmin sem ég á að skila á þriðjudaginn. En þessi frídagur er kallaður Martin Luther King dagur en samt var fæðingardagur hans síðasta fimmtudag.
Ritað af Ingvar [13:01]
<< Home