Matrix
Á þriðjudagskvöldið skellti ég mér á Matrix Revolutions í IMAX og verð að segja að IMAX bíóið var mjög kúl, stærra tjald hef ég ekki séð. Ég ætla ekki að skrifa neitt um myndina til að skemma ekki fyrir þeim sem eiga eftir að fara á hana, heldur ætla ég aðeins að fjalla um bíóið. Á undan Matrix var sýndur trailer úr þrívíddarmynd um Nascar kappaksturinn og það var virkilega töff að sjá myndina fylla út í allt tjaldið. En svo byrjaði Matrix og þá var hún í widescreen eins og í venjulegum bíóum en eini munurinn var að hún var stærri en í venjulegum bíóum.
En það var virkilega gaman að sjá hana á svona stóru tjaldi. Samt fannst mér hljóðkerfið ekkert voðalega gott, kannski er maður bara vanur allt of góðu. T.d. eru ekki nema örfáir salir hér í Seattle sem hafa THX hljóðkerfi. Og í raun var myndinn ekkert mikið stærri en hún hefði verið í sal 1 í Háskólabíó. Greinilegt að bíóin heima á Íslandi eru öll með því besta sem gerist í heiminum, og ég ætla að nota tækifærið meðan ég er á Íslandi um jólin og skella mér á lokamyndina af LOTR.
Ritað af Ingvar [16:59]
<< Home