Ingvar

[ laugardagur, nóvember 22, 2003 ]

Placebo

Tónleikarnir í gærkvöldi voru snilld, með bestu tónleikum sem ég hef séð. Placebo voru mjög þéttir og soundið ótrúlega gott á Graceland. Þetta var einnig fyrsta alvöru djammið hérna í Seattle frá klukkan hálf sex um daginn til klukkan 4 í nótt.
Ritað af Ingvar [17:56]

[ þriðjudagur, nóvember 18, 2003 ]

Fyrsta prófið búið

Þá er fyrsta prófið mitt í UW búið og ég held að það hafi bara gengið ágætlega. Í gærkvöldi var haldið upp á að fyrsta prófið væri búið með því að fara á tónleika með Polyphonic Spree. Þessir tónleikar voru alveg magnaðir, 30 manns upp á sviði sem lifðu sig algjörlega inn í tónlistina. Og ég mæli með því að allir kíki á tónleika með þeim ef þeir hafa tækifæri til þess. Svo á föstudaginn er ég að fara á tónleika með Placebo og það verður eflaust snilld.
Ritað af Ingvar [15:34]

[ fimmtudagur, nóvember 13, 2003 ]

Matrix
Á þriðjudagskvöldið skellti ég mér á Matrix Revolutions í IMAX og verð að segja að IMAX bíóið var mjög kúl, stærra tjald hef ég ekki séð. Ég ætla ekki að skrifa neitt um myndina til að skemma ekki fyrir þeim sem eiga eftir að fara á hana, heldur ætla ég aðeins að fjalla um bíóið. Á undan Matrix var sýndur trailer úr þrívíddarmynd um Nascar kappaksturinn og það var virkilega töff að sjá myndina fylla út í allt tjaldið. En svo byrjaði Matrix og þá var hún í widescreen eins og í venjulegum bíóum en eini munurinn var að hún var stærri en í venjulegum bíóum.

En það var virkilega gaman að sjá hana á svona stóru tjaldi. Samt fannst mér hljóðkerfið ekkert voðalega gott, kannski er maður bara vanur allt of góðu. T.d. eru ekki nema örfáir salir hér í Seattle sem hafa THX hljóðkerfi. Og í raun var myndinn ekkert mikið stærri en hún hefði verið í sal 1 í Háskólabíó. Greinilegt að bíóin heima á Íslandi eru öll með því besta sem gerist í heiminum, og ég ætla að nota tækifærið meðan ég er á Íslandi um jólin og skella mér á lokamyndina af LOTR.
Ritað af Ingvar [16:59]

[ mánudagur, nóvember 10, 2003 ]

Bíó
Ég skellti mér í bíó á laugardaginn á Kill Bill og verð að segja að hún hafi komið mér mjög skemmtilega á óvart. Það eru óteljandi flott atriði í henni og ég verð að segja að ég hefði verið alveg til í að sitja í tvo tíma í viðbót. Í staðinn verður maður að bíða þangað til í febrúar til að sjá seinni hlutann.

Á morgun er ég svo að fara á Matrix Revolutions í IMAX auk þess sem það er "frídagur" á morgun því að það er verið að fagna fyrrverandi hermönnum. (e. Veteran Day). Ég þarf nú samt að mæta í skólann og reyna að læra eitthvað. Auk þess sem eini tíminn sem átti að vera á morgun var bara fluttur á næsta mánudag.

Í dag eru tveir mánuðir síðan ég kom til Seattle og rétt rúmur mánuður þar til ég fer til Íslands í jólafrí og mér finnst eins og ég sé nýkominn hingað.
Ritað af Ingvar [16:18]

[ miðvikudagur, nóvember 05, 2003 ]

24
Kláraði að horfa á 24 í gær og ég verð að segja að þessir þættir komu virkilega vel á óvart. Ekki bjóst ég við að maður myndi festast yfir 24 þáttum sem gerast í rauntíma á sólarhring. En allavega horfði ég á alla þættina á fjórum dögum. 4 á laugardaginn, 8 á sunnudaginn, 8 á mánudaginn og svo síðustu fjóra í gær. Ætli maður verði ekki að kaupa seriu tvö líka fljótlega?
Ritað af Ingvar [20:14]

[ mánudagur, nóvember 03, 2003 ]

Halloween

Á föstudaginn var Halloween eins og flestir vita. Við íslendingarnir vorum ekkert á því að klæða okkur upp á í tilefni dagsins fyrir utan Þröst sem ákváð að klæða sig í álfaprinsessu búning. Ég skellti mér á tónleika með íslensku hljómsveitinni Singapore Sling (ég hafði nú samt ekki gerst svo frægur að hafa heyrt í þeim áður). Þetta voru hinir bestu tónleikar og voru hljómsveitarmeðlimir ansi hissa að sjá fjóra íslendinga á tónleikunum. Tónleikarnir voru til að verða tvö um morgunin en þá loka ákúrat allir barir í Seattle. Því miður var klukkan þá orðin of margt til að finna Þröst og sjá hann í búningnum, kannski að maður verði orðinn það mikill kani eftir ár að maður skelli sér í búning og taki þátt í þessari hátíð.

Laugardagurinn var tekin rólega en um kvöldið skellti ég mér á ekta Bandarískan hamborgarastað með Þresti Frey (En til að fyrirbyggja allan misskilning þá er það ekki sami Þröstur og klæddi sig í álfaprinsessu búningin). Þegar við vorum búnir að borða kíktum við niður að Football vellinum hjá skólanum þar sem Washington Husky var að spila við Oregon. Við áttum reyndar ekki miða þannig að við röltum bara í kringum völlinn og upplifðum stemminguna. Það var reyndar rigning og frekar kalt þannig að við skelltum okkur heim til Armins og horfðum á restina af leiknum þar. En þess má geta að Washington vann leikinn með miklum mun.

Dagurinn í gær fór svo í lærdóm og að horfa á 24 en Þröstur lánaði mér fyrstu seriuna á DVD og ég horfði á fyrstu 12 þættina um helgina og á örugglega eftir að klára að horfa á þá fljótlega í vikunni.
Ritað af Ingvar [15:28]