Update
Núna er ég fluttur inn í íbúðina og er að vinna í að koma mér fyrir. Ég er meðal annars búinn að kaupa rúm og sjónvarp. Svo er eitthvað komið í ískápinn og frystinn. Það er alveg magnað að það sé hægt að fá 20" Philips sjónvarp fyrir 160$ hérna en við fórum í Costgo í gær. Ég var næstum því búinn að kaupa DVD spilara líka á 60$ en ég lét það bíða aðeins. Í staðinn er ég búinn að panta digital Cable og nettengingu frá Comcast og vonandi koma þeir á fimmtudaginn í næstu viku og tengja mig.
Annars er ég kominn með Washington State ID þannig að ég þarf ekki lengur að þvælast með vegabréfið á mér til að geta keypt áfengi eða farið á pöbbinn en það er alveg merkilegt hvað allir eru alltaf spurðir um skilríki hérna þó að það sé augljóst að einstaklingurinn sé orðinn 21 árs.
Núna er ég aðeins að vona að ég fari að fá Social Security Number svo að ég geti farið að fá mér síma, en það er hrikalegt að hafa ekki GSM þegar maður er vanur því. En það virðist vera einna erfiðast hér að fá sér GSM og þeir virðast ekki þekkja prepaid símakort eða Frelsi eins og við erum vön heima á Íslandi.
Svo byrjar skólinn á mánudaginn og er mig eiginlega bara farið að hlakka til að byrja í skólanum. En það var kynning í dag á skólanum og þetta lýtur allt mjög vel út.
Ritað af Ingvar [16:04]
<< Home