Arnarstapi
Þetta var mjög fín helgi, ég fór með Hamrinum í útilegu á Arnarstapa á Snæfellsnesi. Þar var gríðarstuð um helgina og spurning hvort að það hafi verið meiri hávaði í okkur eða í 150 manna samkomu hjá ÍTR á tjaldsvæðinu, reyndar var ÍTR samkoman í aðeins meiri fjarlægð frá tjaldsvæðinu en við. Á föstudagskvöldinu var byrjað á að tjalda, drekka bjór og koma sér fyrir, síðan fengum við okkur að borða en að því loknu voru sungin nokkur lög. Upp úr miðnætti var ákveðið að kíkja í göngutúr og skoða næsta nágrenni ásamt því sem við kíktum niður á ÍTR svæðið þar sem Bensi stóð í ströngu við að stjórna uppsetningu á risatjaldi sem gekk hægar en hann hefði vonað.
Á laugardeginum var farið í bíltúr um nánasta nágrenni Arnarstapa og síðan var endað á að fara í sund á Ólafsvík. Þegar við komum til baka fórum við í smá fótbolta með misjöfnum árangri! Að fótboltanum loknum var farið að að hita grillið og þá komu fyrstu dropar helgarinnar úr lofti. Svo stytti upp rétt á meðan við grilluðum. Til allrar lukku hafði Siggi Grétar verið svo sniðugur að koma með hústjald sem við gátum öll komist inn í og þar sátum við um kvöldið og borðuðum og drukkum o.s.frv. Seint um nóttina var ákveðið að kíkja á ÍTR liðið og sjá hvernig stemmingin væri þar. Og þangað fóru þeir hörðustu og vorum við þar eitthvað fram eftir nóttu í fínni stemmingu.
Það rigndi alla sunnudagsnóttina, en þegar við vöknuðum var komið ágætis veður þannig að tjöldi voru nánast þurr þegar við tókum þau niður. Þegar búið var að ganga frá öllu fórum við í heljarinnar göngutúr að hellnum og kíktum á kaffihús við ströndina.
Allavega var þetta frábær helgi og Óli á lof skilið fyrir skipulagninguna.
Einnig vilja ég benda á myndir á heimasíðu Jóns
KR er komið í annað sætið
Á laugardaginn spilaði KR við "topplið landsbankadeildarinnar" Þrótt og sigraði þá 2-1, þannig að nú er KR komið í annað sæti deildarinnar.
Ritað af Ingvar [04:31]
<< Home