Ingvar

[ fimmtudagur, júlí 31, 2003 ]

KR komið á toppinn
KR vann frækinn sigur á ÍA upp á Skaga í gær. Unnu 3-2 eftir að hafa lent undir á annari mínútu. Nú er bara að vinna það sem eftir er og þá verður titillinn áfram í Vesturbænum.
Ritað af Ingvar [05:27]

[ mánudagur, júlí 28, 2003 ]

Uppfærsla
Ég er búinn að gera smá uppfærslu á heimasíðunni minni. Búinn að bæta við niðurteljara í brottför vinstra megin á síðuna ásamt því að bæta inn veðrinu í Seattle.
Ritað af Ingvar [11:08]

KR er komið á toppinn
KR komst á toppinn ásamt liðinu úr Árbænum í gær með því að sigra Fram 3 -1.
Ritað af Ingvar [11:06]

[ mánudagur, júlí 21, 2003 ]

Formúla og KR
Að sjálfsögðu vann Ferrari formúluna á Silverstone núna um helgina, reyndar Barricello en samt Ferrari! Reyndar snérist keppnin upp í algjöra vitleysu þegar einhver maður hljóp inn á brautina. kimi náði aðeins einu stigi af Schumacher eftir að hafa misst bæði Barricello og Montoya fram úr sér þegar hann var fremstur. Nú eru aðeins fimm keppnir eftir og spennan magnast.
KR sló Fram liðið útúr bikarnum með 2-0 sigri í gær sem þó hefði hæglega getað orðið stærri. Nú er næsti leikur á miðvikudaginn við FC Pyunik frá Armeníu og hvet ég alla til að mæta á þann leik.
Ritað af Ingvar [04:24]

[ föstudagur, júlí 18, 2003 ]

Brottför 10. september
Ég var að bóka flug í gær til Seattle, fer þann 10. september. Þannig að nú styttist óðum í þetta. Samt er hellingur sem maður á eftir að gera áður en maður kemst út.
Ritað af Ingvar [06:06]

[ fimmtudagur, júlí 17, 2003 ]

FC Pyunik - KR
KR tapaði í gær 0-1 fyrir FC Pyunik úti í Armeniu sem verður reyndar að teljast ágætis árangur miðað við að spilað var í 40°c hita og margir í KR liðinu voru ekki með vegna meiðsla. Seinni leikurinn fer fram á Laugardalsvelli næsta miðvikudag og þar vonandi vinnur KR með að minnsta kosti með tveggja marka mun.
Ritað af Ingvar [06:09]

Terminator II og 3
Ég skellti mér á forsýningu á T3 á þriðjudagskvöldið og ekki skemmdi fyrir að klassíkin T2 var sýnd á undan, sem sagt fjórir og hálfur tími af Terminator. Gamla góða T2 stendur alltaf fyrir sýnu og sérstaklega gaman að sjá hana í bíó eftir að hafa horft á hana á margoft sjónvarpsskjá.
Ég mæli með að allir skelli sér á T3 enda fín skemmtun á ferðinni.
Ritað af Ingvar [06:06]

[ mánudagur, júlí 14, 2003 ]

Fleiri myndir
Stebbi er líka búinn að setja myndir á netið.
Ritað af Ingvar [06:46]

Arnarstapi
Þetta var mjög fín helgi, ég fór með Hamrinum í útilegu á Arnarstapa á Snæfellsnesi. Þar var gríðarstuð um helgina og spurning hvort að það hafi verið meiri hávaði í okkur eða í 150 manna samkomu hjá ÍTR á tjaldsvæðinu, reyndar var ÍTR samkoman í aðeins meiri fjarlægð frá tjaldsvæðinu en við. Á föstudagskvöldinu var byrjað á að tjalda, drekka bjór og koma sér fyrir, síðan fengum við okkur að borða en að því loknu voru sungin nokkur lög. Upp úr miðnætti var ákveðið að kíkja í göngutúr og skoða næsta nágrenni ásamt því sem við kíktum niður á ÍTR svæðið þar sem Bensi stóð í ströngu við að stjórna uppsetningu á risatjaldi sem gekk hægar en hann hefði vonað.

Á laugardeginum var farið í bíltúr um nánasta nágrenni Arnarstapa og síðan var endað á að fara í sund á Ólafsvík. Þegar við komum til baka fórum við í smá fótbolta með misjöfnum árangri! Að fótboltanum loknum var farið að að hita grillið og þá komu fyrstu dropar helgarinnar úr lofti. Svo stytti upp rétt á meðan við grilluðum. Til allrar lukku hafði Siggi Grétar verið svo sniðugur að koma með hústjald sem við gátum öll komist inn í og þar sátum við um kvöldið og borðuðum og drukkum o.s.frv. Seint um nóttina var ákveðið að kíkja á ÍTR liðið og sjá hvernig stemmingin væri þar. Og þangað fóru þeir hörðustu og vorum við þar eitthvað fram eftir nóttu í fínni stemmingu.

Það rigndi alla sunnudagsnóttina, en þegar við vöknuðum var komið ágætis veður þannig að tjöldi voru nánast þurr þegar við tókum þau niður. Þegar búið var að ganga frá öllu fórum við í heljarinnar göngutúr að hellnum og kíktum á kaffihús við ströndina.

Allavega var þetta frábær helgi og Óli á lof skilið fyrir skipulagninguna.

Einnig vilja ég benda á myndir á heimasíðu Jóns

KR er komið í annað sætið
Á laugardaginn spilaði KR við "topplið landsbankadeildarinnar" Þrótt og sigraði þá 2-1, þannig að nú er KR komið í annað sæti deildarinnar.
Ritað af Ingvar [04:31]

[ miðvikudagur, júlí 09, 2003 ]

Loksins
Loksins tókst KR að vinna leik í deildinni en þeir unnu Fimleikafélag Hafnarfjarðar í gær 2-1. Eftir að hafa yfirspilað FH í fyrri hálfleik hefðu þeir átt að vera allavega 3-0 yfir en voru aðeins 1-0 yfir. Síðan í seinni hálfleik var FH sterkari aðilinn á vellinum og hefðu þeir með smá heppni geta unnið leikinn, klúðruðu meira að segja vítaspyrnu. En allt kom fyrir ekki, eftir að FH hafði jafnað náði KR að skora á síðustu mínútu leiksins og sigra leikinn. Nú liggur leiðin vonandi bara upp á við!
Ritað af Ingvar [07:20]

[ mánudagur, júlí 07, 2003 ]

Helgin
Ég gerði lítið annað um helgina en að hvíla mig eftir fríið og safna orku fyrir næstu helgi. Næstu helgi verður farið í útilegu á Arnarstapa og þar verður vafalaust mikið stuð eins og er vanalega þegar hópurinn hittist. Ég vil minna fólk á að prenta út söngbókina.
Ritað af Ingvar [04:28]

Helgi vonbrigða
Hvorki Ferrari né KR tókst að vinna um helgina. Michael Schumacher kláraði Magny Cours í þriðja sæti sem verður reyndar að teljast ágætis árangur eftir að hafa næstum dottið í fimmta í startinu. Hann átti aldrei séns í sterkt BMW-williams lið en eins og oft áður tók hann mclaren menn í nefið. Svo kom Barricello í mark í sjöunda sæti eftir að hafa snúið bílnum í byrjun.
Svo tókst KR ekki að skora gegn ÍBV í Vestmannaeyjum á laugardaginn í miklum rok leik. Þrátt fyrir slappt gengi KR undanfarið eru þeir þó aðeins 5 stigum á eftir efsta liði deildarinnar.
Ritað af Ingvar [04:20]

[ þriðjudagur, júlí 01, 2003 ]

Kominn heim
Það var magnað að vera á formúlunni um helgina. Reyndar fór hún ekki eins og best verður á kosið en það var þó bót í máli að báðir Mclaren bílarnir duttu út og þar af sáum við DC fljúga útaf beint fyrir framan okkur. Ég ætla að reyna að koma myndum inn á netið við fyrsta tækifæri.
Ritað af Ingvar [03:25]