Þýskaland
Ég og Jón erum núna búnir að vera í þýskalandi í tvo daga í yfir 30°c hita (Þannig að núna er á hreinu að Toggi var ekkert að ýkja á msn-inu). Á laugardaginn fórum við til Heidelberg sem er gömul borg sem ekki skemmdist mikið í stríðinu og því er þar mikið af gömlum og fallegum byggingum, meðal annars gríðarmagnaður kastali sem var hrunin að hluta. Svo í gær fórum við Europa-Park sem er stærsti skemmtigarður þýskalands og þar prófuðum við fullt af rússibönum og allskonar skemmtilegum tækjum. Í dag er stefnan að ferðast aðeins um Karlsruhe og sjá hvað borgin hefur upp á að bjóða.
Ritað af Ingvar [02:13]
<< Home