Síðasta færslan á irg.blogspot.com
Á fundi vefstjórnar um daginn var ákveðið að hætta að skrifa á þennan vef vegna hagræðingar. Það er búið að vera fínt að koma fréttum á netið á meðan ég bjó út í Seattle, en hér með vil ég benda fólki á að taka annaðhvort upp símann eða skrifa email til að fá fréttir af mér.
Annars er það helst að frétta að ég er byrjaður að vinna á Hönnun verkfræðistofu og er að vinna í að koma mér fyrir hérna á Íslandi.
Ritað af Ingvar [21:34]