Mastersritgerð
Undanfarnar vikur er búið að vera brjálað að gera í skólanum, fór reyndar á REM tónleika á föstudagskvöldið algjör snilld.
Ritgerðin er núna kominn til yfirlestrar hjá prófessorunum þar til í næstu viku (ég á reyndar eftir að skrifa inngang, lokaorð og abstract). Svo í næstu viku verður ritgerðinn "kláruð" og vörnin undirbúinn.
Ritað af Ingvar [11:16]
Mastersvörn
Þá er það komið á hreint hvenær ég ver lokaverkefnið. Dagurinn sem var ákveðinn er 7. desember, eftir ákúrat fjórar vikur. En eftir þrjár vikur þarf ég að skila ritgerðinni svo að prófessorarnir geti lesið yfir hana og komið með athugasemdir. Svo eftir að ég er búinn að verja má ég búast við því að þurfa að laga einhver smáatriði í ritgerðinni sem gæti tekið í mesta lagi 3 til 4 daga.
Ritað af Ingvar [15:20]
Stjórnmál
Maður er aðeins farinn að meðtaka forsetakosningarnar hérna, samt er ég ekki ennþá búinn að átta mig á því hvernig þetta gat farið svona. Það er svo stór bót í máli að hann getur "bara" verið við völd 4 ár í viðbót. Ég vil samt benda fólki á að skoða útgönguspárnar á CNN.com þar sem það er útlistað m.a. hvernig fólk kaus eftir trúarbrögðum, innkomu og menntun. Svo bíður maður spenntur eftir næsta skrefi hjá Michael Moore.
Svo er annað sem hefur vakið athygli mína undanfarna daga, en það Olíufélagamálið. Ég skil ekki hvernig Þórólfur ætlar að geta setið áfram sem borgarstjóri auk þess sem mér finnst forstjórarnir fá of mikinn frið. Það ætti að gera alla þessa menn ábyrga fyrir þessu en ekki bara olíufélögin sjálf.
Ritað af Ingvar [15:41]
Forsetakosningar
Þá eru forsetakosningarnar búnar, ég á reyndar bágt með að trúa úrslitinum, þ.e. að yfir 50milljónir manna skuli hafa kosið núverandi "forseta". Það er þá allavega hægt að segja með vissu að hann hafi unnið núna. Kannski er það trúin, enda hefur margoft verið sagt að trú sé undirrót alls ills.
En ég er þó sáttur við að Washington fylki kaus rétt og þá sérstaklega sýslan sem Seattle er í þar sem Kerry fékk um 65% atkvæða.
Ritað af Ingvar [13:31]