Annað blogg mánaðarins
Helgin var frábær en Stebbi og Hulda kíktu í heimsókn, og ég sýndi þeim allt það helsta sem Seattle hefur uppá að bjóða. En þar á meðal er nálin, Pike Place Market, Miðbærinn, Skipastiginn og að sjálfsögðu matsölustaðir og barir. Einnig er ekki hægt að koma til Seattle án þess að fara á einhverja tónleika þannig að við fórum á Mogwai. Reyndar átti ég miða á tónlistarhátíð á laugardaginn, en vegna persónulegra mála þurfti söngvari Cure að skreppa til London þannig að hátíðin var felld niður. Nánari ferðasögu má sjá á síðunni þeirra og vonandi koma þau líka einhverjum myndum á netið.
Þar síðasta helgi fór svo að mestu í að horfa á seriu tvö af Alias, nú þarf ég að bíða í tvær vikur eftir því að þriðja serian komi út á DVD. Svo er þriðja serian af 24 líka að koma einhver tímann í næsta mánuði.
Annars er það að frétta að ég er að vinna í lokaverkefninu og hefur það gengið upp og niður. En undanfarnar tvær vikur hafa reyndar verið mjög góðar. Þetta er stundum eitt skref áfram og tvö aftur á bak, en eins og allt þá hlýtur þetta að hafast að lokum.
Það er búið að leggja niður myndakerfið sem ég var með, það kom mér reyndar ekki mikið á óvart þar sem þeir voru að bjóða frí 200mb og voru með mjög fáar auglýsingar. Sannar enn og aftur "Ef eitthvað er of gott til að vera satt" þá er það það. Ég hef ekki ennþá ákveðið hvar/hvort ég set myndirnar aftur á netið.
Ritað af Ingvar [10:41]
Kominn tími á að blogga
Ég er búinn að vera frekar latur að blogga undanfarið. En virku dögunum hef ég að mestu leiti eytt í skólanum að vinna að lokaverkefninu. Auk þess sem ég horfði á fyrstu seríuna af Alias á DVD, en þessir þættir komu mjög skemmtilega á óvart en ég hafði ekki séð einn einasta þátt áður.
Um þar síðustu helgi upplifði ég bandarískt strandarpartý með nokkrum krökkum úr bekknum þar sem farið var niður á strönd og grillaðar pulsur yfir varðeldi og drukkinn bjór. En það er samt hægara sagt en gert að drekka bjór á almannafæri hérna í BNA enda telst það stór glæpur að vera með opin bjór á almannafæri!!
Svo núna um helgina var Seafair hátíð hérna þar sem fram fór keppni á hraðbátum ásamt flugsýningu. En ég fór með Steina og Gunnhildi og við tókum í leiðinni 7 klukkutíma hjólatúr um borgina, reyndar með góðum pásum á nokkrum stöðum.
Af myndamálum er það að frétta að ég hef ekki ennþá ákveðið hvert ég ætla að setja myndirnar þannig þið lesendur góðir verðið bara að bíða spenntir.
Ritað af Ingvar [14:10]