Ingvar

[ mánudagur, júlí 26, 2004 ]

Chelsea 4 - Celtic 2
Á laugardaginn fór ég á fótboltaleik milli Chelsea og Celtic, það var algjör snilld að sjá loksins fótboltaleik eftir að hafa ekki séð einn einasta leik núna í sumar.
Maður varð ekki fyrir neinum vonbrigðum á þessum leik, 6 mörk þar af 4 hjá Chelsea og 2 hjá Celtic. Ekki skemmdi heldur fyrir að Eiður Smári skoraði eitt mark og lagði upp annað en hér að neðan má sjá mynd þegar hann er nýbúinn að skora og einnig þegar nafnið hans sést upp á markatöflunni.



Völlurinn virkar kannski hálftómur á þessum myndum, en þess má geta að það voru yfir 30þús áhorfendur, sem virkar frekar lítið á tæplega 70þús manna leikvangi!

Svo til að toppa helgina þá unnu bæði M. Schumacher og KR um helgina.

Ég er núna búinn að gefast upp á myndakerfinu þannig að ef einhver veit um gott frítt myndakerfi á netinu þá væri ágætt að fá að vita um það í athugasemdunum.
Ritað af Ingvar [11:50]

[ miðvikudagur, júlí 21, 2004 ]

Getraun fimmtudagsins
Nú er loksins komið að svari við getrauninni. Þrátt fyrir mörg góð svör er enginn með rétt svar, rétt svar er milljón dollarar á mánuði. Ég reyndar á bágt með að trúa þessari tölu en þetta er það sem var sagt í fyrirlestri í Hoover dam. Það er reyndar allt stórt í Las Vegas, þannig að þetta gæti vel passað. Þetta er einnig sterkasta ljósið á jörðinni og á að vera annað af tveimur manngerðum hlutum sem sjást úr geimnum.
Ritað af Ingvar [21:50]

[ mánudagur, júlí 19, 2004 ]

Svar við getraun fimmtudagsins
Vegna fárra svara var ákveðið á fundi dómnefndar að framlengja getraunina um tvo daga.  Þó er hægt að segja að þrátt fyrir góðar ágiskanir er ekkert svar fullnægjandi þannig að þeir sem hafa þegar tekið þátt geta reynt aftur.
 
Héðan er það helst að frétta að það er full heitt, hitinn fer upp í tæplega 30 gráður á daginn og niður í um 20 á nóttinni.  Svo er loftkælingin í skólanum ekki alveg að virka sem skildi þannig að það er frekar erfitt að eyða deginum þar.
 
Þar sem myndakerfið er ennþá eitthvað bilað hef ég ekki ennþá getað sett myndirnar á netið en það ætti samt að gerast fyrr en síðar.  Ef myndakerfið verður ennþá bilað í lok vikunnar verður farið í opið útboð til að finna nýtt kerfi.
 
En þess má að lokum geta að ég er fara á fótboltaleik á laugardaginn þar sem Chelsea er að spila á móti Celtic í ChampionsWorld keppninni sem fer fram í USA.  Það er bara að vonandi að Eiður verði í liðinu.
Ritað af Ingvar [22:14]

[ fimmtudagur, júlí 15, 2004 ]

Getraun dagsins
Ég er búinn að vera að reyna að koma myndunum á netið en það er eitthvað verið að uppfæra myndakerfið þannig að ég get ekki sett þær inn strax. En allavega hér að neðan er smá preview af því sem koma skal.

Ég tók þessa mynd upp í Eiffel turninum í Las Vegas (stærri mynd fæst með því að ýta á hana).

Spurning dagsins er: Hvað kostar að hafa kveikt á ljósinu sem lýsir upp himininn en það upp á stærsta píramída í heiminum?

Svar kemur á mánudaginn.
Ritað af Ingvar [13:21]

[ þriðjudagur, júlí 13, 2004 ]

Fríið búið!!
Núna er ljúfa lífið búið og ég er mættur aftur í skólann, en það er frekar erfitt að koma sér aftur á stað í lærdómnum eftir 4 vikna frí, auk þess sem það er núna 25°c hiti og sól hérna. Maður getur samt sætt sig við það að maður er ekki að taka nein námskeið heldur er ég bara að vinna að lokaverkefninu og get þess vegna ráðið mér meira sjálfur, þó hef ég ákveðna hvattningu þar sem ég á vikulegan fund með prófessornum og þá er betra að hafa eitthvað til að sýna.

Ég hef ekki ennþá lagt í að velja myndir til að setja á netið enda voru teknar um 2500 myndir. Lengri útgáfa af ferðasögunni kemur svo með myndunum. Ég stefni þó að koma hluta af ferðasögunni og myndunum á netið núna í vikunni.
Ritað af Ingvar [13:23]