Skóli
Það er frekar skrítið að eiga ennþá eftir rúmar tvær vikur í skólanum þegar allir eru að tala um að vera komnir í sumarfrí. En ég sætti mig við það þar sem ég er að klára síðustu önnina sem ég þarf að taka námskeið á. Eftir þessa önn á ég "bara" eftir að gera lokaverkefni. Það er einnig farið að styttast í að ég hitti fjölskylduna í Las Vegas en ég flýg þangað 14. júní og tek á móti þeim þegar þau koma frá Minneapolis.
Formúlan um helgina fór ekki alveg eins og ég bjóst við en Trulli átti sigurinn fyllilega skilið eftir frábæran akstur alla helgina.
Að lokum vil ég óska Reyni til hamingju með að vera orðinn verkfræðingur.
Ritað af Ingvar [00:16]
Muse
Síðasta sunnudagskvöld sá ég Muse í annað skipti á viku en þeir voru að spila á Neumos. Þeir stóðu undir væntingum þó að hljóðkerfið hafi ekki alveg verið að ráða við þá.
Undanfarna viku hef ég lítið gert annað en að læra enda eru ekki nema 3 vikur eftir af önninni. En ég get ekki beðið eftir að klára þessa önn svo að ég geti farið að einbeita mér að fullu að lokaverkefninu og þurfa ekki að vera að mæta í tíma og gera vikuleg verkefni.
Ritað af Ingvar [17:56]
Coachella
Nú er komið að síðustu færslunni um Coachella!! Ég er búinn að setja myndir á netið, þar er hægt að sjá myndir bæði úr LA og frá Coachella.
Fyrir þá sem hafa áhuga á að heyra tónleikana þá er hægt að downloada hljóðupptöku af Radiohead tónleikunum hér og Pixies tónleikunum hér.
Svo annað kvöld er ég að fara á tónleika með MUSE hérna í Seattle. Þeir verða eflaust góðir en þeir slógu algjörlega í gegn á Coachella.
Ritað af Ingvar [18:07]
Coachella
Coachella var hrein snilld. Hvað getur topað að sjá Radiohead, Pixies, Sparta, Kraftwerk, Stellastar, Beck, the Cure, Flaming Lips, AIR, Belle & Sebastian og Muse á tveimur dögum?
Radiohead var án efa mesta snilldin, þeir tóku öll sín bestu lög en hér er lagalistinn: There There, 2+2=5, Lucky, Myxomatosis, My Iron Lung, Exit Music (for a film), The Gloaming, Karma Police, Sail To The Moon, I Might Be Wrong, Sit Down. Stand Up, No Surprises, National Anthem, Paranoid Android, Idioteque og Street Spirit (fade out), svo eftir uppklapp: You And Whose Army?, Planet Telex, Creep og Everything In Its Right Place.
Ég ætla svo að reyna að setja inn eitthvað að þeim 200 myndum sem ég tók við fyrsta tækifæri sem verður þó sennilega ekki fyrr en um helgina.
Nú tekur alvaran aftur við en önnin er rétt hálfnuð þannig að nú er farið að styttast í midterm en ég fer í það fyrsta núna á föstudaginn.
Ritað af Ingvar [00:10]