Gleðileg jól
Ég vil óska öllum lesendum þessarar síðu gleðilegra jóla.
Ritað af Ingvar [06:27]
Kominn til Íslands
Nú er ég búinn að vera á Íslandi í tvo daga. Er að mestu búinn að ná mér af tímamismuninum og nú er bara að bíða eftir jólunum.
Ritað af Ingvar [15:31]
Heimferð
Núna er ég staddur á flugvellinum í Seattle að bíða eftir að flugvélin fari í loftið. En það gekk svo vel að fara í gegnum tékkinnið og allt að það tók ekki nema um 40mín. Þannig að núna hef ég tvo tíma til að leika mér á netinu.
Ég verð kominn til Íslands eftir rétt rúma 16 tíma (vonandi).
Ritað af Ingvar [09:41]
Búinn í prófum
Núna er ég loksins búinn í prófum og ég vona að það hafi bara gengið ágætlega en ég náði reyndar ekki að klára það alveg vegna tímaskorts, það voru reyndar allir í sömu vandræðunum þannig að þetta hlýtur að verða skalað.
Svo fer ég til Íslands eftir rétt rúma tvo daga. Ég minni fólk á fund Norður-Ameríkudeildar Hamarsins á alþjóðaflugvellinum í Minneapolis þann 19. des. Fríir drykkir og matur fyrir alla sem mæta.
Ritað af Ingvar [18:33]
Próf
Ég er búinn með heimaprófið, en það var frekar létt svona eins og þægilegt heimadæmi frekar en próf. Ég skila því svo af mér í fyrramálið.
Í gærkvöldi fór ég í bíó að sjá Stuck on You sem var mjög góð skemmtun. Enda klikka Farrelly bræður sjaldan.
En í dag byrjaði alvaran aftur en ég er að lesa fyrir steypupróf sem er á þriðjudaginn. En ég get huggað mig við það að prófin eru búin eftir rétt rúma tvo daga.
Í gær var byrjað að selja miða á tónleika með Britney Spears í Key Arena sem verða 12. mars. Ég verð reyndar í miðjum prófum þá og kemst (þvímiður) ekki. Fyrir áhugasama er þetta tilvalin ástæða til að kíkja á vesturströnd Bandaríkjanna.
Ritað af Ingvar [15:41]
3 mánuðir
Í dag er ég búinn að búa í Seattle í þrjá mánuði og finnst mér eins og ég sé rétt ný kominn hingað, ég ætla rétt að vona að næsta ár líði ekki alveg svona hratt.
Allavega, í dag var síðasti tíminn í skólanum þannig að formlegt upplestrarfrí er byrjað þó er ég ekki búinn að hafa neitt að gera síðan fyrir viku síðan. Samt hef ég lært mjög lítið þessa viku, það er alltaf gott að hvíla sig aðeins áður en prófin koma :).
Ritað af Ingvar [21:40]
Prófin
Öðrum kennaranum mínum datt í hug að breyta til og hætta við að hafa heimapróf og því þarf ég að fara í venjulegt próf þriðjudaginn 16. des klukkan 8:30am en ég hef ekki vaknað það snemma síðan í sumar þegar ég var að vinna. En hitt prófið er heimapróf sem ég þarf að klára um helgina. Samt er skrítið að hérna eru prófin einungis 90mín þannig að maður verður að vera fljótur að koma sér í gírinn.
Ritað af Ingvar [21:53]
Helgin
Um helgina gerði ég allt annað en að læra. Á milli þess sem ég drakk bjór og vín var ég að horfa á aðra seriuna af 24, en ég gerði þau mistök síðasta miðvikudag að byrja að horfa á hana. Allavega var ágætt að eyða helgina í að horfa á þetta þar sem ég er búinn með öll verkefni og lítið vit í að byrja strax að læra fyrir próf. Svo núna er ég kominn með kvef en ég vona að ég nái að losa mig við það sem fyrst áður en prófin byrja.
Ritað af Ingvar [11:59]
Thanksgiving
Núna eru rúmar tvær vikur síðan ég bloggaði síðast og kominn tími til að skrifa eitthvað. Síðasta fimmtudag var Þakkargjörðardagurinn haldinn hátíðlegur hér í bæ. Við íslendingarnir hittumst heima hjá Pétri og Soffiu, þar var borðaður gríðargóður kalkúnn sem Soffia og Gunnhildur höfðu eldað ásamt því sem það var nóg af meðlæti. Byrjað var að borða upp úr klukkan 6 og síðan var setið við matarborðið til rúmlega 3 um nóttina. Kalkúnninn var næstum því kláraður, 12 vínflöskur lágu í valnum og einhverjar kippur af bjór. En þess má geta að það voru 10 manns þegar mest var.
Föstudagurinn var tekinn rólegur, fyrst kíkti ég með Armin í bæinn og svo fórum við heim til hans og Polí-Þröstur kom líka og við horfðum saman á Lord of the rings - Two Tower: Extended edition. Og ég verð að segja að þessi útgáfa af myndinni er mun betri en bíóútgáfan. Og nú hlakkar mann bara til að fara í Smárabíó um jólin til að sjá Return of the king.
Síðan á laugardaginn hef ég ekki gert neitt annað en að læra. Því að í dag átti ég að skila ritgerð og tveimur heimadæmum, sem hafðist allt að lokum seint í gærkvöldi. Nú er ég líka búinn með allt sem ég þarf að gera fyrir próf, og kominn í upplestrarfrí. En upplestrarfrí er eitthvað sem ég er ekki vanur auk þess sem bæði prófin mín eru heimapróf þannig að ég á sennilega ekki eftir læra mikið fyrr en ég fæ prófin í hendurnar um þar næstu helgi.
Nú eru tæpar þrjár vikur í að ég fari til Íslands í jólafrí. Skrítið hvað þessir tæpu þrír mánuðir sem ég er búinn að vera hérna í Seattle hafa flogið frá manni.
Ritað af Ingvar [15:20]